Benedikt Árnason skipaður ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur skipað Benedikt Árnason í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Benedikt Árnason er nýr ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Benedikt Árnason er nýr ráðu­neyt­is­stjóri í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Mynd: Aðsend

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur skipað Benedikt Árnason í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Benedikt tekur við af Krist­jáni Skarp­héð­ins­syni frá­far­andi ráðu­neyt­is­stjóra. Frá þessu er greint í dag í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Benedikt er sagður búa yfir mik­illi reynslu af störfum innan stjórn­ar­ráðs­ins og íslenskrar stjórn­sýslu. Síðast var hann skrif­stofu­stjóri skrif­stofu stefnu­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá árinu 2016 og hefur verið stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra þar.

Hann er þjóð­hag­fræð­ingur að mennt frá Háskóla Íslands og Toronto-háskóla í Kanada og hefur einnig lokið MBA gráðu í fjár­málum og stefnu­mótun frá sama skóla.

Hann starf­aði hjá Þjóð­hags­stofnun frá árinu 1988 til 1993 í hluta­starfi með námi og fullu starfi frá árinu 1993 til 1994. Árið 1994 tók hann við starfi skrif­stofu- og fjár­mála­stjóra hjá Vita- og hafn­ar­mála­stofnun og gegndi því fram til árs­ins 1995. Benedikt hóf störf í iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu árið 1996. Fyrst sem deild­ar­stjóri og síðar skrif­stofu­stjóri fjár­mála­mark­aðar og stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra árið 1998 og starf­aði sem slíkur fram til árs­ins 2004.

Árið 2005 hóf Benedikt störf sem einn af aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjórum Norræna fjár­fest­inga­bank­ans í Helsinki og svæð­is­stjóri fyrir Ísland. Þar starf­aði hann fram til árs­ins 2008 en þá tók hann við starfi sem aðstoð­ar­for­stjóri Askar Capital fjár­fest­inga­banka hf. Síðar sama ár varð Benedikt for­stjóri sama fyr­ir­tækis og starf­aði sem slíku fram til árs­ins 2010. [links]

Árið 2010 til 2013 var Benedikt aðal­hag­fræð­ingur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Hann hóf störf árið 2013 í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra­nefnda rík­is­stjórn­ar­innar og hefur frá árinu 2016 og fram til dags­ins í dag gegnt emb­ætti skrif­stofu­stjóra skrif­stofu stefnu­mála og síðar stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra.

Alls bár­ust 13 umsóknir um emb­ættið, sem var aug­lýst í byrjun maí. Hæfn­is­nefnd mat þrjá umsækj­endur hæf­asta til þess að gegna emb­ætt­inu. Ráðherra boð­aði í fram­haldi við­kom­andi til við­tals og var það mat ráð­herra að Benedikt væri hæf­astur umsækj­enda til að taka við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár