Bryndís nýr ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu

Ráðu­neyt­is­stjóra­skipti verða í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá með 1. jan­úar næst­kom­andi þegar Ragn­hildur Arn­ljóts­dóttir tekur við nýju emb­ætti í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra tekur Bryndís Hlöðvers­dóttir, rík­is­sátta­semj­ari.

Bryndís Hlöðversdóttir
Bryndís Hlöðvers­dóttir Mynd: Háskólinn á Bifröst

Ráðu­neyt­is­stjóra­skipti verða í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá með 1. jan­úar næst­kom­andi þegar Ragn­hildur Arn­ljóts­dóttir, ráðu­neyt­is­stjóri, tekur við nýju emb­ætti í utan­rík­is­þjón­ust­unni.

Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu tekur Bryndís Hlöðvers­dóttir, rík­is­sátta­semj­ari. Bryndís er lög­fræð­ingur að mennt og hefur gegnt emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara frá árinu 2015.

Áður var hún starfs­manna­stjóri Land­spít­ala-háskóla­sjúkra­húss og rektor við Háskól­ann á Bifröst. Þá gegndi Bryndís þing­mennsku fyrir Alþýðu­banda­lagið og Sam­fylk­ing­una á árunum 1995 til 2005. Hún var áður lög­fræð­ingur hjá Alþýðu­sam­bandi Íslands og starfs­maður nefndar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu um aðskilnað umboðs­valds og dóms­valds í hér­aði.

Ragn­hildur mun und­ir­búa opnun nýrrar fasta­nefndar Íslands hjá Evr­ópu­ráð­inu í Strass­borg og taka við emb­ætti þar 1. júní næst­kom­andi. Ragn­hildur mun auk hefð­bund­ins fyr­ir­svars og skyldu­starfa á þessum vett­vangi byggja upp starf­semi fasta­nefnd­ar­innar í Strass­borg og vinna að und­ir­bún­ingi for­mennsku Íslands í Evr­ópu­ráð­inu sem hefst árið 2022.

Ragn­hildur hefur gegnt emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í rúman ára­tug en var áður ráðu­neyt­is­stjóri í félags­mála­ráðu­neyt­inu frá árinu 2004 og full­trúi í sendi­ráð­inu Brussel frá 2002 til 2004. Hún starf­aði í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu frá árinu 1995 og á Alþingi frá árinu 1993. Ráð­herrar sem Ragn­hildur hefur unnið með í þremur ráðu­neytum eru á annan tug­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár