Páll hættir sem ráðuneytisstjóri og Erna Kristín tekur við keflinu

Nýtt skipu­lag mennta- og barna­mála­ráðu­neytis tók gildi í dag og mun Erna Kristín Blöndal taka við af Páli Magn­ús­syni sem ráðu­neyt­is­stjóri.

Páll Magnússon og Erna Kristín Blöndal
Páll Magn­ús­son og Erna Kristín Blöndal Mynd: Samsett mynd

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra hefur skipað Ernu Kristínu Blöndal, skrif­stofu­stjóra, í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra frá og með deg­inum í dag. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins en í henni er nýtt skipu­lag mennta- og barna­mála­ráðu­neytis kynnt.

Erna Kristín tekur við af Páli Magn­ús­syni, sem fer til starfa hjá fasta­nefnd Íslands í Genf og mun þar starfa á sviði mál­efna barna, meðal ann­ars við að efla alþjóð­legt sam­starf íslenskra stjórn­valda hvað varðar vel­ferð og rétt­indi barna en einnig á sviði alþjóða­vinnu­mála og alþjóða­heil­brigð­is­mála, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

[adspot]

„Erna er með BA- og meistara­gráðu í lög­fræði frá Háskóla Íslands, býr yfir mik­illi reynslu af störfum innan Stjórn­ar­ráðs­ins og íslenskrar stjórn­sýslu og hefur haldið utan um stór verk­efni á vegum íslenskra stjórn­valda. Hún hefur gegnt emb­ætti skrif­stofu­stjóra síðan 2019, fyrst á skrif­stofu barna- og fjöl­skyldu­mála hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu (nú félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti) og nú síð­ast skrif­stofu barna­mála í mennta- og barna­mála­ráðu­neyti.

Áður var Erna verk­efna­stjóri hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu 2018-2019 þar sem hún leiddi vinnu um end­ur­skoðun á mál­efnum barna, fram­kvæmda­stjóri nor­rænnar stofn­unar um fólks­flutn­inga 2016-2018 og lög­fræð­ingur og verk­efna­stjóri hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu (nú dóms­mála­ráðu­neyt­inu) frá 2009-2016, m.a. sem sér­fræð­ingur þverpóli­tískrar þing­manna­nefndar um end­ur­skoðun útlend­inga­laga. Auk þessa hefur hún sinnt ýmsum nefndar- og stjórn­ar­störfum og m.a. setið í stjórn og verið stjórn­ar­for­maður UNICEF á Íslandi,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kærði ráðningu Páls

Mikið var rætt um ráðn­ingu Páls á sínum tíma en Lilja Alfreðs­dóttir, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, ákvað að skipa Pál sem ráðu­neyt­is­stjóra í byrjun nóv­em­ber 2019.

Páll hafði gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn um ára­bil en í til­kynn­ingu Lilju um ráðn­ing­una kom fram að það hefði verið mat ráð­herra að hann væri hæf­astur umsækj­enda til að stýra ráðu­neyt­inu næstu fimm árin og leiða það umbóta­starf sem væri í far­vatn­in­u.

Haf­dís Helga Ólafs­dóttir var á meðal þeirra sem sóttu um starf ráðu­neyt­is­stjóra í mennta­mála­ráðu­neyt­inu þegar það var aug­lýst árið 2019. Haf­dís Helga kærði ráðn­ingu Páls til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála þar sem hún taldi ljóst að reynslu­minni og minna mennt­aður karl­­maður hefði verið ráðin í starfið sem hún sótt­­ist eft­­ir. Gögnin hefðu sýnt að ráðn­­ing­­ar­­ferlið hefði ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga og reglna og Haf­­dís Helga taldi sig ekki hafa fengið sann­­gjarna og óhlut­­dræga með­­höndlun af hálfu ráðu­­neyt­is­ins.

Ráðherrann braut jafnréttislög

Kæru­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með ráðn­ingu Páls. Lilja ákvað að íslenska ríkið myndi stefna Haf­dísi Helgu per­sónu­lega til að fá úrskurð kæru­nefnd­ar­innar ógild­an.

[links]Í mars í fyrra hafn­aði hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur öllum máls­á­­stæðum Lilju og sagði í nið­­ur­­stöðu sinni að ekki hafi verið fyrir hendi neinir „ann­­markar á máls­­með­­­ferð kæru­­nefnd­­ar­innar sem leitt geti til ógild­ingar á úrskurði henn­­ar“.

Lilja ákvað að áfrýja dómnum rúmum fjórum klukku­­stundum eftir að hann hafði fall­ið. Þar með lá fyrir að málið yrði í áfrýj­un­ar­ferli að minnsta kosti fram yfir þing­kosn­ing­ar, sem fram fóru 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Eftir kosn­ing­arnar end­ur­nýj­uðu fyrri stjórn­ar­flokkar sam­starf sitt en mála­rekstur Lilju gegn Haf­dísi Helgu varð eftir í nýju barna- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti sem Ásmundur Einar Daða­son, flokks­bróðir Lilju, sett­ist í. Kjarn­inn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um afstöðu hans til mála­rekst­urs­ins í byrjun des­em­ber í fyrra en fékk engin svör.

Íslenska ríkið féll frá málarekstrinum

Í byrjun febr­úar kom málið nokkuð óvænt inn á dag­skrá Lands­rétt­ar. Mál­flutn­ingur skyldi fara fram 28. febr­úar 2022.

Í aðdrag­anda þessa höfðu átt sér stað umtals­verð sam­skipti milli máls­að­ila þar sem lög­maður Haf­dísar Helgu, Áslaug Árna­dótt­ir, kall­aði eftir upp­lýs­ingum um hvað ráðu­neyti Ásmundar Ein­ars ætl­aði að gera. Þegar málið var komið á dag­skrá Lands­réttar varð meira knýj­andi að fá svar frá ráðu­neyt­inu og settum rík­is­lög­manni. Tím­inn leið.

Svörum var lofað í byrjun febr­ú­ar, en þau bár­ust ekki. Svo áttu þau að ber­ast viku síð­ar, en gerðu það ekki. Loks lá fyrir að Ásmundur Einar myndi láta aft­ur­kalla mála­rekst­ur­inn en það var ekki gert form­lega fyrr en 24. febr­úar með sam­komu­lagi, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Og ekki gert opin­bert fyrr en 25. febr­úar þegar málið var tekið út af dag­skrá Lands­rétt­ar, síð­asta virka dag áður en að mál­flutn­ingur átti að fara fram í Lands­rétti.

Samið um miskabætur

Haf­dís Helga gat ekki sótt skaða­bætur vegna þess að ekki lá fyrir að hún hefði fengið starf ráðu­neyt­is­stjóra ef Páll, sem hefur gegnt mýmörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og bauð sig eitt sinn fram til for­mennsku í hon­um, hefði ekki verið ráð­inn. Af þeim þrettán sem sóttu um emb­ættið mat hæf­is­nefnd fjóra umsækj­endur mjög hæfa til að gegna því og Lilja tók þá fjóra í við­tal. Á meðal þeirra var Páll en ekki Haf­dís Helga. Ógjörn­ingur var því að sýna fram á að Haf­dís Helga hefði verið tekin fram fyrir þá tvo sem út af stóðu í mjög hæfa hópnum til að sækja skaða­bætur vegna tekju­taps, sem hefði verið mis­mun­ur­inn á launum ráðu­neyt­is­stjóra og núver­andi starfi hennar út starfs­fer­il­inn, út frá fyr­ir­liggj­andi gögn­um. Þess vegna var samið um miska­bæt­ur.

Kostn­að­­­ur­ rík­­is­ins við rekstur máls­ins fyrir hér­­­aðs­­­dómi nam alls 8,7 millj­­­ónum króna. Áætlað var að kostn­aður vegna áfrýj­unar til Lands­réttar yrði á bil­inu 900 þús­und krónur til 1,2 millj­­­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Til við­bótar bæt­tist sá kostn­aður sem féll til vegna greiðslu miska­bóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár