Martin Eyjólfsson tekur við stöðu ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis

Martin Eyj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri alþjóða- og þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, tekur við stöðu ráðu­neyt­is­stjóra þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Núver­andi ráðu­neyt­is­stjóri, Sturla Sig­ur­jóns­son, verður sendi­herra í Lundúnum.

Martin Eyj­ólfs­son tekur við stöðu ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins af Sturlu Sig­ur­jóns­syni þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands. Martin er nú um mundir skrif­stofu­stjóri alþjóða- og þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins en hann hóf störf í utan­rík­is­þjón­ust­unni árið 1996. Í störfum sínum í utan­rík­is­þjón­ust­unni hefur Martin meðal ann­ars gegnt emb­ætti sendi­herra Íslands í Þýska­landi.

Í til­kynn­ing­unni segir að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra, hafi ákveðið breyt­ingar á yfir­stjórn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og flutn­inga á for­stöðu­mönnum sendi­skrif­stofa. Breyt­ing­arnar feli ekki í sér skipun nýrra sendi­herra heldur sé um flutn­inga núver­andi sendi­herra að ræða.

Frá­far­andi ráðu­neyt­is­stjóri, Sturla Sig­ur­jóns­son, verður sendi­herra með aðsetur í Lundúnum 15. nóv­em­ber næst­kom­andi. Núver­andi sendi­herra í Lundúnum, Stefán Haukur Jóhann­es­son, verður sendi­herra Íslands í Tókýó þann 1. jan­úar næst­kom­andi í stað Elínar Flygenring sem kemur til starfa í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um ára­mótin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár