Stefán skipaður ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Guðlaugs Þórs – Staðan ekki auglýst

Ráðu­neyt­is­stjór­inn í umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyti hefur ráðið sig til starfa hjá Orku­veitu Reykja­víkur. Ráðherra hefur þegar skipað næsta ráðu­neyt­is­stjóra á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefur skipað Stefán Guð­munds­son, sem gegnt hefur emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu fjár­mála og rekstrar í umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu, sem ráðu­neyt­is­stjóra frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Staðan var ekki aug­lýst heldur var Stefán fluttur í emb­ættið á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­manna rík­is­ins milli emb­ætta.

Sigríður Auður Arn­ar­dóttir, sem hafði gegnt emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyt­inu frá árinu 2014 hefur ráðið sig til Orku­veitu Reykja­víkur sem stjórn­andi á nýju fagsviði Sam­hæf­ingar og stjórn­sýslu sem heyrir undir for­stjóra.

Í til­kynn­ingu frá umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu kemur fram að Stefán sé mennt­aður við­skipta­fræð­ingur með kandídats­próf í stjórnun frá Háskóla Íslands. Hann starf­aði áður sem for­stöðu­maður rekstrar- og mannauðs­sviðs Mat­væla­stofn­unar, áður Land­bún­að­ar­stofn­unar, frá árinu 2006 til 2014.

Lilja mátti skipa Skúla Eggert

Þetta er ekki í fyrsta sinn á þessu kjör­tíma­bili sem ráð­herra skipar ráðu­neyt­is­stjóra á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði Skúla Eggert Þórð­ar­son, þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda, í það emb­ætti innan síns ráðu­neyti snemma á þessu ári.

Umboðs­maður Alþingis, Skúli Magn­ús­son, óskaði eftir skýr­ingum á laga­legum grund­velli fyrir skipan hans og á brefum hans til ráð­herr­ans mátti merkja að hann átt­aði sig ekki fylli­lega á hvaða laga­legi grund­völlur hafi verið fyrir skip­un­inni.

[adspot]Í mars sendi umboðs­maður Lilju bréf þar sem fram kom að athugun hans á skipan þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytis sé lok­ið.

Í bréf­inu sagði meðal ann­ars að í ljósi aðkomu og afstöðu þings­ins gagn­vart til­færslu Skúla Eggerts úr emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda yrði ekki hjá því kom­ist að líta svo á að það félli utan við starfs­svið umboðs­manns, þar sem það taki ekki til starfa Alþing­is, að fjalla um ákvörðun ráð­herra að skipa við­kom­andi með þeim hætti sem gert var og án und­an­geng­innar aug­lýs­ing­ar. Ekki væri því laga­skil­yrði til þess að emb­ætti umboðs­manns geti haldið athugun sinni áfram.

Umboðs­maður tók þó fram að með nið­ur­stöð­unni hefði engin efn­is­leg afstaða verið tekin til atvika máls­ins eða þeirra skýr­inga sem hefðu verið færðar fram vegna þess.

Áslaug Arna braut gegn lögum

Þetta var ekki eina málið sem varð­aði skipan ráðu­neyt­is­stjóra sem umboðs­maður Alþingis skipti sér að. Hann óskaði einnig eftir skýr­ingum á tíma­bund­inni skipan Ásdísar Höllu Braga­dóttur sem ráðu­neyt­is­stjóra í háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu til þriggja mán­aða fyrr á þessu ári.

[links]Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir skip­aði Ásdísi Höllu, sem er fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ, í emb­ættið í jan­ú­ar­lok 2022.

Í bréfi Umboðs­manns Alþingis til Áslaugar Örnu sagði að ekki yrði annað ráð­ið, í ljósi þess að verið væri að setja á fót nýtt ráðu­neyti, að um nýtt emb­ætti innan ráðu­neyt­is­ins væri að ræða.

Umboðs­maður óskaði því eftir upp­lýs­ingum „um hvort umrætt emb­ætti hafi verið aug­lýst til umsókn­ar“ og ef svo hafi ekki ver­ið, óskaði hann eftir skýr­ingum frá ráð­herra á því á hvaða laga­grund­velli það hafi verið gert.

Í byrjun mars birti umboðs­maður álit þess efnis að Áslaugu Örnu hefði ekki verið heim­ilt að setja Ásdísi Höllu í emb­ættið án aug­lýs­ingar. Ráð­herr­ann hafi því brotið gegn lögum með ákvörðun sinni.

Áslaug Halla sótti um emb­ættið í byrjun mars og var tekin fram yfir aðra umsækj­endur þegar Áslaug Arna ákvað að skipa hana í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í apríl. Alls sóttu átta um emb­ættið, fjórir drógu umsókn sína til baka og tveir voru metnir hæf­astir. Á meðal umsækj­enda var Sigríður Auður, þá ráðu­neyt­is­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár