Haukur Guðmundsson skipaður ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu

Hauk­ur Guðmunds­son hef­ur verið skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og tek­ur hann við emb­ætt­inu 1. júní. Embættið var aug­lýst 10. apríl og voru um­sækj­end­ur tólf en þrír drógu um­sókn­ir sín­ar til baka. Þriggja manna hæfis­nefnd fór yfir um­sókn­irn­ar og var hauk­ur á meðal þeirra um­sækj­enda sem metn­ir voru hæf­ir.

Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra, skipar í emb­ættið.

Hauk­ur lauk lög­fræði­prófi frá Há­skóla Íslands 1996 og auka­ein­ing­um í hag­fræði og stjórn­mála­fræði. Hann hef­ur rétt­indi til mál­flutn­ings fyr­ir hér­aðs­dómi og hef­ur einnig lokið fjölda nám­skeiða á sviði lög­fræði seg­ir í frétta­til­kynn­ingu. Hauk­ur hef­ur verið sjálf­stætt starf­andi lög­maður frá ár­inu 2012 og var sett­ur for­stjóri Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins í rúmt ár, frá 2014 til 2015. Þá hef­ur hann gegnt for­mennsku í gjaf­sókn­ar­nefnd frá 2015 og úr­sk­urðar­nefnd um við­skipti við fjár­mála­fyr­ir­tæki frá 2012. „Hauk­ur hef­ur einnig sinnt verk­efn­um fyr­ir inn­an­rík­is­ráðu­neytið um ein­stök mál tengd stofn­ana­skipu­lagi og sam­starfi stofn­ana á sviði út­lend­inga­mála og verk­sviði Björg­un­ar­mið­stöðvar­inn­ar í Skóg­ar­hlíð. Þá starf­aði Hauk­ur einnig um ára­bil hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu, fyrst árin 1998 til 2001 og aft­ur 2004 til 2010, að und­an­skildu einu ári, þegar hann var sett­ur for­stjóri Útlend­inga­stofn­un­ar. Hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu var Hauk­ur m.a. skrif­stofu­stjóri einka­mála og borg­ara­skrif­stofu og sinnti þar m.a. kæru­mál­um, stefnu­mót­un og stjórn­sýslu á sviði per­sónu­rétt­ar og út­lend­inga­mála.“

Enn­frem­ur seg­ir að Hauk­ur hafi einnig gegnt starfi full­trúa hjá sýslu­mann­in­um í Hafnar­f­irði um tveggja ára skeið og verið aðstoð­ar­maður dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands. Þá hafi hann verið sendi­full­trúi hjá sendi­ráði Íslands í Brus­sel árin 2001–2004.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár