Ásdís Halla skipuð ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Áslaugar

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur skipað Ásdísi Höllu Braga­dóttur í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í háskóla-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Ásdís Halla Bragadóttir verður áfram í embætti ráðuneytisstjóra í hinu nýja ráðuneyti.
Ásdís Halla Braga­dóttir verður áfram í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í hinu nýja ráðu­neyti.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur skipað Ásdísi Höllu Braga­dóttur í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í háskóla-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu í dag.

Ásdís Halla hefur verið við­loð­andi ráðu­neytið und­an­farna mán­uði, en í byrjun des­em­ber var hún ráðin verk­efn­is­stjóri við und­ir­bún­ing ráðu­neyt­is­ins, sem varð til með lögum um ára­mót. Síðan var hún sett tíma­bundið sem ráðu­neyt­is­stjóri til þriggja mán­aða frá 1. febr­úar, en þá ráð­stöfun sagði umboðs­maður Alþingis reyndar ekki í sam­ræmi við lög, í áliti sem kom út 4. mars.[links]

Umsókn­ar­frestur um emb­ættið rann út 28. febr­úar, en alls sótt­ust 8 manns eftir emb­ætt­inu. Á meðal ann­­arra umsækj­enda um emb­ættið var Sig­ríður Auður Arn­­ar­dótt­ir, sem verið hefur ráðu­­neyt­is­­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­­neyt­inu und­an­farin sjö ár. Aðrir umsækj­endur voru Borg­hildur Ein­­ar­s­dóttir for­­stjóri, Elmar Hall­gríms Hall­gríms­­son fram­­kvæmda­­stjóri, Huld Magn­ús­dóttir fram­­kvæmda­­stjóri, Katrín Olga Jóhann­es­dóttir fram­­kvæmda­­stjóri, Ragn­hildur Ágústs­dóttir sölu­­stjóri og Sig­­urður Erlings­­son við­­skipta­fræð­ing­­ur.

Tveir metnir hæfastir af hæfnisnefnd en ráðherra átti lokaorðið

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins kemur fram að hæfn­is­nefnd hafi metið tvo umsækj­endur hæf­asta til þess að gegna emb­ætt­inu.

„Ráðherra boð­aði í fram­haldi við­kom­andi til við­tals og var það mat ráð­herra að Ásdís Halla væri hæfust umsækj­enda til að taka við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Guð­mundur Árnason, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, var settur ráðu­neyt­is­stjóri til þess að ann­ast skip­un­ar­ferlið,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

[adspot]

Ásdís Halla lauk meistara­gráðu í opin­berri stjórn­sýslu frá Harvard háskóla árið 2000 og MBA gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík árið 2008. Árið 1990 lauk hún BA námi í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands.

Hún var meðal ann­ars verið bæj­ar­stjóri í Garðabæ í um 5 ár, for­stjóri BYKO, aðstoð­ar­maður mennta­mála­ráð­herra, átt sæti í háskóla­ráði Háskól­ans í Reykja­vík, háskóla­ráði Kenn­ara­há­skól­ans og setið í stjórn NOVA.

„Síðustu ár hefur hún komið að stofnun og rekstri far­sælla nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­þjón­ustu ásamt því að sinna rit­störfum. Þá hefur Ásdís Halla víð­tæka reynslu af stefnu­mótun og áætl­ana­gerð bæði í störfum sínum hjá hinu opin­bera og úr atvinnu­líf­inu. Hún hefur mikla reynslu sem stjórn­andi, hefur borið ábyrgð á fjöl­breyttum rekstri og stýrt fjölda starfs­manna frá árinu 2000. Ásdís Halla hefur góða og fjöl­breytta þekk­ingu á mála­flokkum ráðu­neyt­is­ins, skýra fram­tíð­ar­sýn fyrir nýtt ráðu­neyti og breytt verk­lag,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár