Gamalt handrit að Star Wars staðfestir að Han Solo skaut fyrst

Gamalt handrit að Stjörnu­stríðs­myndum George Lucas, sem kom nýlega í leitirnar, svarar einni stærstu ósvöruðu spurningu þríleiksins; um hvor hafi átt að skjóta fyrst, Han Solo eða Greedo. Frétta­miðillinn TIME greinir frá þessu áhuga­verða máli.

Í fyrstu Stjörnu­stríðs­myndinni, Star Wars Episode IV: A New Hope, sem frumsýnd var árið 1977, var smygl­arinn Han Solo, í túlkun Harrison Ford, nýbúinn að gera samning við Loga Geim­gengil og Obi-Wan Kenobi í bænum alræmda Mos Eisley á Tatooine, heima­plánetu Loga, um að flytja þá, ásamt C3PO og R2D2, á Fálkanum til plánetunnar Alderaan, þegar hausa­veiðarinn Greedo verður á vegi hans. Greedo var þar í erinda­gjörðum á vegum Jabba the Hutt, glæpa­manns sem átti ýmislegt sökótt við Solo eftir misheppnaða smyglferð.

Í uppruna­legu Star Wars myndinni, sem frumsýnd var árið 1977, ræðast tvímenningarnir stuttlega við í bás á bar í Mos Eisley eða þar til Han Solo skýtur hausa­veiðarann fyrirvara­laust undir borð sem þeir sátu við.

Þannig var sagan í tuttugu ár, eða allt þar til árið 1997 þegar George Lucas ákvað að gefa Star Wars myndirnar aftur út með stafrænum breytingum, sem voru flestar ef ekki allar ekki til bóta. Á meðal þess sem Lucas breytti var áðurnefnt stefnumót Solo og Greedo, og í „uppfærðu“ útgáfunni skýtur Greedo fyrst að Solo, áður en smygl­arinn fellir hausa­veiðarann. Með breytingunni var kaldrifjuðum morðingja breytt í mann sem getur þakkað ótrúlegri óhittni alræmds hausa­veiðara, af eins meters færi, líf sitt.

Umrædd breyting var fordæmd harðlega á meðal aðdáaenda Stjörnu­stríðs­myndanna, og þá ekki síst á meðal dyggra stuðnings­manna Han Solo. Samkvæmt fyrr­greindu handriti að uppruna­lega þríleiknum, sem fannst fyrir tilviljun í vísinda­skáldsagna­safni bókasafns í Kanada nýverið, er öllum vafa um atvikið eytt. Han Solo var fyrri til að taka í gikkinn. Lucasfilm, sem á réttinn að Star Wars vöru­merkinu, hefur sagt að um endurgerð af gömlu handriti að fyrstu Stjörnu­stríðs­myndinni að ræða, sem aðdáandi myndanna hafi trúlega skrifað.

Handritið, sem kom nýlega fyrir sjónir almennings, er merkt sem fjórða uppkast og dagsett 15. mars árið 1976. Þar heitir fyrsta Stjörnu­stríðs­myndin: Star Wars: Saga I, og Luke Skywalker (Logi Geim­gengill) heitir því skugga­lega nafni Luke Starkiller.

Margir aðdáendur Stjörnu­stríðs­myndanna fagna því að nú hafi loks verið staðfest að Han Solo skaut Greedo með köldu blóði, en fréttirnar eru sömuleiðis síst til þess fallnar að bæta laskað samband milli skapara myndanna og aðdáenda þeirra.

Atriðið fræga og umdeilda, um aðdrag­anda og samskipti Han Solo og Greedo, má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár