Telja tvöfalda skimun kosta þjóðarbúið allt að 20 milljarða króna

Starfs­hópur fjármála­ráðuneytisins áætlar að þjóðar­búið verði af 13-20 milljörðum króna út árið vegna hertra aðgerða á landa­mærunum, en er þó óviss um eigin útreikninga.

Már Guðmundsson fyrrverandi seðlabankastjóri leiðir starfshópinn
Már Guð­munds­son fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri leiðir starfs­hóp­inn Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt nýrri skýrslu starfs­hóps fjármála­ráðuneytisins um efnahagsleg áhrif valkosta í sótt­varnarmálum gæti ákvörðunin um að taka upp tvöfalda skimun á landa­mærunum kostað þjóðar­búið um 13 til 20 milljarða út árið. Þó er hópurinn óviss um eigin útreikninga og bendir á að aðrir þættir en sótt­varnar­aðgerðir virðast hafa áhrif á efnahags­umsvif.

Starfs­hópurinn er leiddur af Má Guðmunds­syni fyrr­verandi seðla­bankastjóra, en í honum eru einnig Tómas Brynjólfsson skrif­stofustjóri í fjármála­ráðuneytinu og Ásdís Kristjáns­dóttir aðstoðar­framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins.

Skýrslan vísar til þess að fjöldi ferða­manna um Kefla­víkur­flugvöll minnkaði snögglega eftir að stjórn­völd fyrir­skipuðu að allir komu­farþegar þyrftu annað hvort að fara í tvöfalda skimun með sóttkví á milli eða tveggja vikna sóttkví. Sú fækkun hafi haldið áfram í september, en daglegur fjöldi farþega á vellinum var þá orðinn nokkur hundruð, miðað við fimm þúsund í byrjun ágúst­mánaðar.

Út frá breytingunni í farþega­tölum gerir hópurinn ráð fyrir að úrræði stjórn­valda hafi minnkað fjölda ferða­manna um 70 prósent. Ef miðað er við að hver ferða­maður dvelur hér á landinu í tíu daga og eyði að meðaltali 100 til 120 þúsund króna áætlar hópurinn að þjóðar­búið verði af um 13-20 milljörðum króna vegna fyrir­komulagsins út árið. Þetta jafngildi 1,2 til 1,8 prósentum af lands­framleiðslu.

Forsendur óvissar

Í skýrslunni er þó tekið fram að mat hópsins á tapi ferða­þjónustunnar vegna tvöfaldrar skimunar er byggt á forsendum sem óvíst er hvort haldi. Þeirra á meðal er sá ferðamanna­fjöldi sem hefði annars komið til Íslands ef úrræðanna nyti ekki, en hópurinn gerir ráð fyrir því að hann hefði haldist óbreyttur frá því sem hann var í byrjun ágúst­mánaðar, ef tekið er tillit til árstíðar­breytinga.

Hópurinn nefnir einnig að vísbendingar erlendis frá bendi til þess að aðrir þættir hafi áhrif á umsvif í efnahags­lífinu heldur en opinberar sótt­varnar­aðgerðir. Þar vísa þeir til rann­sóknar frá Banda­ríkjunum sem sýnir að neysla og atvinnu­stig hafi minnkað áður en tilkynnt væri um lokanir, auk þess sem umsvifin hafi haldist í skötulíki þrátt fyrir tilkynningar um opnun.

Þar að auki kemur fram í skýrslunni að ólíklegt sé að slakari sótt­varnar­aðgerðir við landa­mærin myndi skila sér í auknum fjölda ferða­manna þegar faraldurinn er á uppleið, þar sem veitinga-og ferða­þjónustu­fyrirtæki þyrftu þá að grípa til harðari ráðstafanna innanlands vegna aukna smithættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár