Peningaþvætti ekki hluti af rannsókn morðsins í Rauðagerði

Margeir Sveinsson, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn, segir peninga­þvætti ekki tengjast rannsókn á morðinu sem framið var í Rauða­gerði í febrúar­mánuði. Albani sem er í haldi lögreglu er sá sem er grunaður um morðið. Rannsókn málsins er að hans sögn senn að ljúka og því mun lögreglan halda sérstakan fund með fjöl­miðlum til að ljúka málinu gagnvart þeim.

Rannsókn tengist ekki peningaþvætti
Rannsókn teng­ist ekki pen­inga­þvætti Margeir Sveins­son stað­festir í sam­tali við Stundina að mögu­legt pen­inga­þvætti og fjár­svik teng­ist ekki rann­sókn lög­regl­unnar á morð­inu í Rauða­gerði Mynd: Samsett / Davíð Þór

Lögreglan hefur ekki til rann­sóknar mögulegt peninga­þvætti og fjársvik í tengslum við morðið sem framið var í Rauða­gerði 13. febrúar síðastliðinn. Þetta stað­festir Margeir Sveinsson, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn. Margeir stað­festir jafnframt að albanskur karlmaður, sem er í haldi lögreglu, sé sá sem grunaður sé um morðið. Morð­rannsóknin er langt komin og vonir standa til að hægt verði að senda málið til ákæru­sviðs innan fárra vikna.

Í lok febrúarmánuðar greindi Ríkis­útvarpið frá því að það hefði heimildir þess efnis að samhliða rannsókn á morðinu í Rauða­gerði væri lögreglan einnig að rannsaka mögulegt peninga­þvætti og fjársvik í tengslum við málið. Margeir Sveinsson, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn stað­festir í samtali við Stundina að svo sé ekki, hann viti ekki hvaðan Ríkis­útvarpið hafi fengið þær upplýsingar. „Rannsókn á morðinu í Rauða­gerði felur í sér rannsókn á morðinu,“ svaraði Margeir fyrir­spurn blaða­manns. Þar að auki segir Margeir að ef svo væri, að peninga­þvætti væri rannsakað samhliða, myndi hann ekki „endilega segja frá því ef svo væri“ eins og hann orðaði það, slíkar upplýsingar gætu varðað rannsóknar­hagsmuni. 

Albani grunaður um verknaðinn

Fjórtán hafa nú réttar­stöðu sakbornings við rannsókn málsins. Meðal þeirra er albanskur karlmaður sem situr í gæslu­varðhaldi, grunaður um að hafa skotið fórnar­lambið Armando Bequiri níu sinnum fyrir utan heimili sitt í Rauða­gerði 28, á meðan þunguð kona hans var inn á heimilinu. Margeir segir að grunur lögreglunnar um að það hafi verið Albaninn sem varð Armando að bana hafi vaknað snemma við rannsókn málsins. 

Lögreglan lagði nýlega hald á skot­vopnið sem Albaninn á að hafa notað við verknaðinn. Rann­sóknin er lang umfangs­mesta morð­rannsókn lögreglunnar til þessa en lögreglan hefur til þessa farið í húsleit á yfir 30 stöðum þar sem hún hefur lagt hald á muni, til að mynda bíla. 

Rannsókn málsins að ljúka

Að sögn Margeirs bindur lögreglan vonir við að hægt verði að senda málið til ákæru­sviðs lögreglunnar innan tveggja til þriggja vikna þar sem rannsókn af hendi lögreglu fari senn að ljúka. Að sögn Margeirs það sem út af stendur af rann­sókninni að miklu leyti það að ljúka við pappírs­vinnu.

Þar sem rannsókn málsins fer að ljúka hjá lögreglu segir Margeir að næsta skref sé að boða fjölmiðla til fundar til að „ljúka málinu við fjölmiðla“. Lögreglan eigi eftir að taka saman hvað nákvæmlega verði farið yfir á þeim fundi og hvort að nýjar upplýsingar muni líta dagsins ljós.

Verjandi í samskiptum við aðra sakborninga

Stundin fjallaði nýverið um lögmann Anton Kristins Þórarins­sonar, eins sakborninga í málinu, en skipun lögmannsins Stein­bergs Finnboga­sonar sem verjanda Antons var felld úr gildi af héraðs­dómi Reykja­víkur og var sú ákvörðun staðfest af Lands­rétti. Anton er eini Íslend­ingurinn með stöðu sakbornings í málinu. Eins og Stundin hefur fjallað um áður er Anton samkvæmt gögnum lögreglunnar talinn hafa verið „lang­stærsti fíkniefna­baróninn á Íslandi“. Gögnin sem um ræða var lekið í janúar síðastliðnum en þau benda til þess að hann hafi verið uppljóstrari lögreglu til fjölda ára.

Lögreglan telur Steinberg mikilvægt vitni í málinu þar sem fjarskipta­gögn sýna fram á að hann hafði haft samskipti við aðra sakborninga áður en hann varð verjandi Antons. Steinbergur var lögmaður Antons áður en Anton óskaði eftir því að hann yrði skipaður verjandi en Steinbergur fullyrti við blaðamann Stundarinnar að samskipti hans við sakborninga, fyrir og eftir að morðið var framið, hafi verið í samræmi við skyldur hans sem lögmanns Antons til fjölda ára.

Margeir vill ekki staðfesta hvort Steinbergur hafi verið kallaður til skýrslu­töku eða ekki í tengslum við að rannsókn málsins sé að ljúka. Ríkis­útvarpið greinir þó frá í dag að samkvæmt heimildum þeirra hafi hann ekki verið boðaður til þessa.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár