Jóhannes tók á móti alþjóðlegum verðlaunum

Uppljóstr­arinn Jóhannes Stef­ánsson, sem varpaði ljósi á mútu­greiðslur Samherja, tók á móti alþjóð­legum verð­launum fyrir uppljóstr­anir sínar í Gautaborg.

Hlaut alþjóðleg verðlaun
Hlaut alþjóð­leg verð­laun Jóhannes Stef­áns­son tók á móti alþjóð­legum verð­launum fyrir að ljóstra upp um fram­ferði Samherja í Namibíu. Mynd: Davíð Þór

Uppljóstrarinn Jóhannes Stef­ánsson veitti alþjóð­legum verð­launum viðtöku í Gautaborg fimmtudaginn 21. október. Verð­launin hlaut hann fyrir að ljóstra upp um viðskipta­hætti Samherja og spillingu í Namibíu. Verð­launin, WIN WIN Gautaborg sjálfbærni­verðlaunin, hafa verið veitt frá árinu 2000 en þemað í ár var „vinna gegn spillingu“. Verðlaunaféð var ein milljón sænskra króna, sem gera um 15 milljónir íslenskar krónur á núverandi gengi. 

Á árunum 2011 starfaði Jóhannes fyrir Samherja en lét af störfum árið 2016. Þremur árum síðar steig hann sjálfur fram og varpaði ljósi á vafasama viðskipa­hætti fyrir­tækisins á erlendri grundu og játaði meðal annars að hafa sjálfur tekið þátt í því að greiða mútur í Namibíu til að Samherji kæmist yfir kvóta þar í landi. 

Í rökstuðningi dómnefndar var Jóhannes sagður hetja. „Þetta er einstaklingur sem koll­varpaði heilum iðnaði og styrkti réttlæti á meðal almennings; raun­veruleg hetja. Með öðrum orðum – við erum stolt af því að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár