Disney ætlar að búa til tvo Star Wars skemmtigarða

Afþreyingar­risinn Disney tilkynnti í gær að fyrir­tækið ætli sér að búa til tvo Star Wars-skemmtigarða innan Disney World-garða sem það rekur nú þegar. Star Wars-garðarnir verða í Disney World í Florída og í Kalíforníu. Hvor um sig verður um 14 ekrur að stærð og stút­fullir af leikurum að leika geimverur, vélmenni og aðrar persónur úr Star Wars-heiminum. Á meðal tækja sem verða í garðinum verður Millenium Falcon-skemmtireið.

Í frétt Times um málið segir að ástæða þess að ráðist sé í framkvæmdina nú sé vitaskuld sú að næsta Star Wars mynd, sem beðið er með mikilli eftir­væntingu, verður frumsýnd í desember. Henni verður leikstýrt af J.J. Abrams og heitir "The Force Awakens". Alls hafa tæplega 59 milljónir manna horft á síðustu stiklu sem birt var úr myndinni. Hægt er að horfa á hana hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=ngElkyQ6Rhs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár