Bankabækur Seðlabankans erlendis tútna út

Banka­innistæður Seðla­banka Íslands á erlendri grundu námu hátt í 400 milljörðum króna í lok júní og höfðu þá aukist um 224 milljarða króna upphafi frá því í árs.

Gjaldeyrisvaraforðinn nam 865,6 milljörðum króna um mitt árið.
Gjald­eyr­is­vara­forð­inn nam 865,6 millj­örðum króna um mitt árið. Mynd: Bára Huld Beck

Nokkrar sviptingar urðu á eigna­stöðu Seðla­banka Íslands erlendis á fyrstu sex mánuðum ársins, en erlendar banka­innstæður bankans jukust um 224 milljarða króna, úr 169,4 milljörðum í lok desember upp í 394 milljarða í lok júní.

Að sama skapi hafa útistandandi eignir bankans í erlendum verð­bréfum og öðrum eignum sem teljast til gjaldeyris­forða bankans dregist mikið saman, eða úr 648 milljörðum niður í 384 milljarða, samkvæmt árshluta­uppgjöri bankans sem birt var í dag.

Heilt yfir drógust eignir Seðla­bankans saman um 44 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins og námu þær 919,6 milljörðum króna að öllu meðtöldu í lok júní­mánaðar.

Gjaldeyris­forði bankans nam 865,6 milljörðum á þeim tíma, en hann samanstendur aðallega „af eign Seðla­bankans í góðum erlendum verð­bréfum og fé á reikningum í traustum bönkum erlendis, einkum í útbreiddustu gjald­miðlunum, svo sem Bandaríkjadal, evru, pundum og jeni,“ eins og segir á vef Seðla­bankans.

Svo er gull einnig oftast á bilinu 1-2 prósent gjaldeyris­varaforðans. Í lok júní átti Seðla­bankinn rúma 15,4 milljarða í gulli, og hafði virði gull­eignar bankans aukist um rúmar 200 milljónir króna frá áramótum. Gullstangir bankans eru um 160 talsins og hafa þær verið geymdar á góðum stað erlendis í um 80 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár