Rammann vantar því annars yrði byrjað „að drita þessu niður út um allt“

Fjölmörg sveitar­félög hafa misserum saman verið að fá á sín borð fyrir­spurnir og beiðnir um byggingu vind­orkuvera. Loks hillir undir að ríkið setji ramma um nýtingu vinds sem forseti sveitar­stjórnar Borgar­byggðar segir sárlega vanta.

Ekkert vindorkuver er risið á Íslandi þótt nokkrar tilraunamyllur hafi verið reistar.
Ekkert vind­orku­ver er risið á Íslandi þótt nokkrar til­rauna­myllur hafi verið reistar. Mynd: Pexels

Guðveig Eyglóar­dóttir, forseti sveitar­stjórnar Borgar­byggðar, segist hafa fullan skilning á því að fólk í Norður­árdal gagnrýni harðlega áform Qair Iceland um að reisa þar vind­orkuver. Enginn vilji stórar framkvæmdir í sínu næsta nágrenni, hvorki vind­myllur né annað. Ekki standi hins vegar til að fara í skipulags­breytingar vegna þessa vind­orkuvers né annarra, að minnsta kosti á næstunni. „Við og væntanlega önnur sveitar­félög bíðum eftir því að ríkið móti einhverja ramma­áætlun um nýtingu vindorku,“ segir hún við Kjarnann. „Frá okkar bæjar­dyrum séð er það grundvallar­forsenda áður en við förum að ræða þessi mál eitthvað frekar.“

Vind­orkuver í landi bæjarins Hvamms í Norður­árdal er aðeins eitt margra slíkra sem fyrir­tækið Qair Iceland áformar. Nokkuð er síðan hugmyndin, sem kennd er við Múla, var viðruð fyrst og sendi Orku­stofnun hana inn til umfjöllunar í 4. áfanga ramma­áætlunar árið 2020. Verkefnis­stjórnin tók þennan tiltekna kost hins vegar ekki til umfjöllunar þar sem hún taldi ekki nægjanleg gögn liggja fyrir.

Mat á umhverfis­áhrifum vind­orkuvers í Múla hófst fyrr á þessu ári er Skipulags­stofnun birti mats­áætlun Qair um framkvæmdina. Stofnunin gaf svo í síðustu viku út álit sitt á áætluninni. Næsta skref í mats­ferlinu eru skil umhverfis­mats­skýrslu, sem Skipulags­stofnun mun auglýsa og óska eftir athuga­semdum og umsögnum við áður en hún gefur út endanlegt álit sitt á framkvæmdinni.

Yfir sextíu manns sem búa eða eru með tengsl við Norður­árdal skiluðu athuga­semdum við mats­áætlunina, líkt og Kjarninn rakti ítarlega í frétta­skýringu um helgina. Allir eru á einu máli: Orkuver sem þetta eigi ekki heima í sveitinni. Um yrði að ræða tröll­vaxið iðnaðar­svæði sem myndi spilla tignarlegri fjallasýn í friðsælli sveit. Áformin væru til marks um dómgreindar­leysi og gróðafíkn fárra á kostnað einstakrar náttúru og mannlífs. Dalbúarnir lýsa yfir undrun, vonbrigðum og óhugnaði. Tala um yfirgang og ásælni. Segja stórslys vera í uppsiglingu.

Þorsteinn Narfason, framkvæmda­stjóri Heilbrigðis­eftirlits Vestur­lands, skrifaði í umsögn eftirlitsins að það komi á óvart hvað verkefnið virðist vera langt komið í ljósi þess að ekki liggi fyrir hvort framkvæmdin verði heimiluð.

Guðveig segir í samtali við Kjarnann að sér finnist umræðan um vind­orkuver komin langt fram úr sér og að erfitt sé fyrir sveitar­félög að taka þátt í henni á meðan ríkið hafi ekki mótað stefnu.

Umræðan í fjöl­miðlum er hins vegar vel skiljanleg þar sem fjöldi fyrir­tækja hefur sett fram á ýmsum vettvangi áform sín um byggingu slíkra vera. Tvö eru t.d. þegar komin inn á aðal­skipulag sveitar­félagsins Dala­byggðar og hugmyndir að 34 voru sendar til umfjöllunar í 4. áfanga ramma­áætlunar. Vind­orku­fyrirtækin hafa sum hver haldið íbúafundi til að kynna áform sín. Hafa hafið mat á umhverfis­áhrifum þeirra.

Guðveig segist skilja að vissu leyti að fyrir­tækin séu farin af stað í þessa vinnu. Gera þurfi margar og tíma­frekar rann­sóknir þegar stórar framkvæmdir séu annars vegar. „Kannski eru þessir fjár­festar eins og aðrir að freista þess að nota tímann til að vinna sér í haginn.“

Ríkið verði að skapa rammann. Ríkis­stjórnin hefur ákveðið að mörkuð skuli stefna um uppbyggingu vind­orkuvera á afmörkuðum svæðum og nýskipaður starfs­hópur á að fara ofan í kjölinn á þeim áætlunum og koma með tillögur. Annars myndi beiðnum um vind­orkuver rigna yfir sveitar­félög, segir Guðveig, „og þetta yrði eins og villta vestrið og það væri byrjað að drita þessu niður út um allt“.

Þjóðin þarf að ræða málin

Áform um að minnsta kosti tvö önnur vind­orkuver í Borgar­byggð hafa verið kynnt og eru þá líkt og áformin í Múla á ís hjá Borgar­byggð.

Guðveig segist hins vegar taka undir með ríkis­stjórninni að fara þurfi í frekari orkuöflun ef stefna eigi að orku­skiptum. „En við sem þjóð þurfum að taka umræðuna um með hvaða hætti við ætlum að gera það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár