Viðtal

Dragdrottn­ingin sem leit­aði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru enda­lokin“

„Þú lætur fólk aldrei sjá þig í dragi fyrir utan klúbbana,“ segir Ray Milano, flótta­maður frá Venes­ú­ela. Hann varð fyrir árás í heima­landi sínu þegar hann skemmti sem dragdrottn­ingin Crisartista. Ray hafði lagt drag-hæl­ana á hill­una þegar honum bauðst að koma fram með nýjum íslenskum vini sínum, stór­stjörn­unni Páli Óskari Hjálmtýs­syni.

12 mín. lestur

InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörðun að fækka sjálfs­vígum

Hvert sjálfs­víg kostar sam­fé­lagið um 500 millj­ónir, en lítið hefur verið lagt í for­varnir. Fyrstu aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum var stungið ofan í skúffu. Næstu áætlun fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unnið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­innar. Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir heldur utan um verk­efnið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þegar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi viljað fara frá mér. En ég get vel skilið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“

16 mín. lestur

Erlent

„Hann er ekki Messías“

Andy Burnham, sem fékk við­ur­nefnið „kon­ungur norð­urs­ins“ sem borg­ar­stjóri Manchester, virð­ist standa á þrös­k­uldi þess að verða næsti leið­togi Verka­manna­flokks­ins og næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Þetta er þriðja atlagan að for­manns­stólnum og að hans sögn „síð­asta tæki­færið“ til að breyta Verka­manna­flokknum. Nú vinnur hann að því að róa fjár­festa. En hver er þessi maður sem var fagnað svo inni­lega af sam­flokks­mönnum þegar hann sór emb­ætt­is­eið sem þing­maður?
Viðskipti

Sam­herja­börnin greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Samherja

Lánið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Steinunn Guð­munds­dóttir veittu börnum sínum til að kaupa nærri helm­ings hlut í Samherja af þeim hefur verið gert upp. Börnin, þau Baldvin, for­stjóri Samherja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðnir með­eig­endur for­eldra sinna í félög­unum sem lán­uðu þeim fyrir kaup­unum. Sam­þykktir félags­ins tryggja þeim fastar arð­greiðslur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið undanfarið ár