Tryggingasali telur sig svikinn eftir veikindi
Viðtal

Trygg­inga­sali telur sig svik­inn eftir veik­indi

Halldór Ragnar Hall­dórs­son var trygg­inga­sali til 25 ára. Eftir alvar­leg veik­indi fyrir rúmum ára­tug varð Halldór öryrki með liða­gigt og síþreytu og þurfti að reiða sig á afkomu­trygg­ingu frá trygg­inga­fé­lag­inu. Í fyrra ákvað félagið, eftir mat læknis sem er ekki gigt­ar­læknir, að helm­inga útgjöld til hans. Fjöldi gigt­ar­lækna hafa stað­fest óvinnu­færni Halldórs, en það hefur ekki haggað stöðu trygg­inga­fé­lags­ins. Nú bíður hann og fjöl­skylda hans eftir yfir­mati og hugs­an­legu dóms­máli. Sjóvá segir að mál Halldórs sé í „eðli­legum far­vegi“.
„Þarna missti ég mömmu mína en eignaðist systur“
Viðtal

„Þarna missti ég mömmu mína en eign­að­ist systur“

Íris Krist­ins­dóttir var ein þekktasta söng­kona lands­ins áður en hún hvarf af sjón­ar­svið­inu. Hún segir hér frá því hvernig hún brann út og rataði nið­ur­brotin í fang ofbeld­is­manns, glímdi við sáran missi og upp­lifði óvænta gleði þegar hún fann ást­ina á ný, eign­að­ist tví­bura og tengd­ist systur sinni á dán­ar­beði móð­ur­innar, sem neit­aði að deyja fyrr en fjöl­skyldan hefði sam­ein­ast.
„Nei-in gerðu mig sterkari“
Viðtal

„Nei-in gerðu mig sterk­ari“

Leikkon­unni Ebbu Katrínu Finns­dóttur var tvisvar synjað um inn­göngu í nám í Leik­list­ar­deild LHÍ. Hún sneri sér að verk­fræði og íhug­aði að láta leikkonu­draum­inn lönd og leið. Hún sótti um í þriðja sinn með sem­ingi, flaug í gegn í það skipti og hefur síðan leikið fjölda áhuga­verðra hlut­verka. Hún er í þremur stórum hlut­verkum hjá Þjóð­leik­hús­inu á leik­ár­inu sem nú stendur yfir.
„Ég er dæmdur fyrir nauðgun”
Viðtal

„Ég er dæmdur fyrir nauðgun”

Ungur strákur var dæmdur fyrir að hafa nauðgað vin­konu sinni. Hann gekkst við gjörðum sínum og ját­aði brot sitt fyrir dómi. Hér veitir hann inn­sýn í hans eigin upp­lifun af brot­inu, hugs­unum í kjöl­far þess og við­horfum hans til eigin gjörða. Sér­fræð­ingar sem koma að mál­efnum þolenda og ger­enda eru flestir á þeirri skoðun að umræðan sé mik­il­væg, þó að það sé við­kvæmt að ræða við ger­endur.
Ætlar að verja starfsfólk RÚV fyrir áreiti og árásum
Viðtal

Ætlar að verja starfs­fólk RÚV fyrir áreiti og árásum

Nýjum útvarps­stjóra, Stefáni Eiríks­syni, þykir vænt um þá lýs­ingu sem hann hefur heyrt á sjálfum sér, að hann taki starf sitt alvar­lega en sjálfan sig minna. Þá gengst hann við þeirri lýs­ingu að hann sé í senn íhalds­samur og nýj­unga­gjarn. Sem útvarps­stjóri ætlar hann að leggja áherslu á að hann sjálfur og stofn­unin verði opin og aðgengi­leg. Hann seg­ist aðeins hafa eitt leyni­mark­mið í starfi, sem hann gefur ekki annað upp um en að það teng­ist Eurovision.
Hamingjan er í fjölskyldunni, tunglinu, vatnsheldum maskara og kaffi
Hamingjan

Ham­ingjan er í fjöl­skyld­unni, tungl­inu, vatns­heldum mask­ara og kaffi

Fyr­ir­gefn­ing, eft­ir­vænt­ing og þakk­læti eru góð verk­færi til að stuðla að ham­ingj­unni. Að ákveða að morgni sér­hvers dags að hann verði góður, leita sátta, sjá það góða í fari fólks og vera óhrædd við að teygja sig út til fólks. Þessar leiðir hefur Olga Björt Þórð­ar­dóttir, rit­stjóri og útgef­andi Hafn­firð­ings, farið til að auka ham­ingju sína.
„Stundum upplifi ég eins og þetta sé allt draumur“
ViðtalAð eignast barn

„Stundum upp­lifi ég eins og þetta sé allt draumur“

Alma Mjöll Ólafs­dóttir var á leið í ferða­lag með kærast­anum og vinum hans, þegar hún komst að því að morgni brott­far­ar­dags að hún væri barns­haf­andi. Það var slökkt á síma kærastans, allt þar til hann var mættur með fulla rútu af fólki að sækja hana. Leynd­ar­mál­inu hvísl­aði hún að honum á bens­ín­stöð í Borg­ar­nesi. Þau Kári Ein­ars­son ræða hér upp­lifun­ina, með­göng­una og það sem bíður þeirra.

Mest lesið undanfarið ár