„Stundum upplifi ég eins og þetta sé allt draumur“

Alma Mjöll Ólafs­dóttir var á leið í ferða­lag með kærast­anum og vinum hans, þegar hún komst að því að morgni brott­far­ar­dags að hún væri barns­haf­andi. Það var slökkt á síma kærastans, allt þar til hann var mættur með fulla rútu af fólki að sækja hana. Leynd­ar­mál­inu hvísl­aði hún að honum á bens­ín­stöð í Borg­ar­nesi. Þau Kári Ein­ars­son ræða hér upp­lifun­ina, með­göng­una og það sem bíður þeirra.

„Stundum upplifi ég eins og þetta sé allt draumur“

Alma: Hver voru þín fyrstu við­brögð þegar ég sagði þér að ég væri ólétt?

Kári: Fyrstu við­brögðin mín voru nátt­úr­lega bara „what?“ Þú sagðir mér það á leið­inni á Flateyri og þú sagðir við mig að ég mætti ekki bregð­ast við fregn­unum af því að við vorum föst í lang­ferða­bíl með vinum mínum í sex klukku­tíma. Já, þú sagðir mér það á bens­ín­stöð­inni í Borg­ar­nesi. Þetta voru örugg­lega frekar skrýtnar aðstæður til að frétta þetta. 

Alma: Manst þú hvað var að fara í gegnum hug­ann á þér þegar þú sast svo rest­ina af ferð­inni en máttir ekki tjá þig um þetta?

Kári: Sko, það var bæði það að vinur minn var búinn að biðja mig um að vera fram í og halda sér félags­skap og vera hress á meðan hann var að keyra. Ég var búinn að vera rosa­leg hress og snið­ugur alveg fram að Borg­ar­nesi og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Að eignast barn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár