Hvernig er að hitta barnið sitt í fyrsta sinn?

Kateřina Bla­hutová og fleiri konur lýsa reynslu sinni af fæð­ingu og þeim til­finn­ingum sem vökn­uðu þegar þær litu börnin sín í fyrsta sinn. Þær lýsa dög­unum sem á eftir komu, sem ein­kennd­ust af töfr­andi ham­ingju­stundum, brjóstum sem fyll­ast af mjólk, óstjórn­legum gráti, djúp­stæðum friði og öllu mögu­legu þar á milli.

Hvernig er að hitta barnið sitt í fyrsta sinn?
Júlían Máni og Katla Fæðingu hans lýsir Katla sem „raun­veru­leg­asta“ augna­bliki sem hún hefur lifað. Mynd: Heiða Helgadóttir

11. októ­ber 2019

Ég fann fyrir svaka­legum létti og miklum til­finn­ingum. Ég grét og hló sam­tímis, sagði pabba hennar að þetta væru hans augu og við grétum öll saman. Svo fann hún brjóstið og það hellt­ist yfir mig svo mik­ill friður. Mér fannst við ein í heim­inum.

Rakel Björg Krist­jóns­dóttir, 29 ára 

Móðurlíf

„Þetta var lík­leg­ast raun­veru­leg­asta augna­blik lífs míns, raun­veru­leg­asta lífs­reynsla sem ég hef upp­lifað. Við lifum í heimi þar sem við höfum tök á því að fresta, strika út eða snúa upp á aðstæður og við eigum auð­velt með að koma okkur út úr þeim en það á alls ekki við um fæð­ingu. Þú getur ekki stöðvað hana eða hlaupið í burtu frá henni eða það sem meira er, hætt við hana. Það voru vissu­lega augna­blik á meðan fæð­ing­unni stóð þar sem ég hugs­aði með mér: „Ég gefst upp! Ég er hætt“ en það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Að eignast barn

ViðtalAð eignast barn

„Stundum upp­lifi ég eins og þetta sé allt draumur“

Alma Mjöll Ólafs­dóttir var á leið í ferða­lag með kærast­anum og vinum hans, þegar hún komst að því að morgni brott­far­ar­dags að hún væri barns­haf­andi. Það var slökkt á síma kærastans, allt þar til hann var mættur með fulla rútu af fólki að sækja hana. Leynd­ar­mál­inu hvísl­aði hún að honum á bens­ín­stöð í Borg­ar­nesi. Þau Kári Ein­ars­son ræða hér upp­lifun­ina, með­göng­una og það sem bíður þeirra.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár