Mynd: Heiða Helgadóttir

Erfiðast að halda þessu leyndu

Iðunn Krist­ín­ar­dóttir og fleiri konur lýsa reynslu sinni af fyrstu tólf vikum með­göng­unnar, því þegar þær sáu fyrstu són­ar­mynd­irnar og stund­inni sem þær átt­uðu sig á því að þær væru barns­haf­andi. Ein þeirra hafði farið með nið­ur­gang til læknis og kom­ist að því að hún bæri barn undir belti.

Meðganga, fæð­ing og sæng­ur­lega. Þrjú frekar hvers­dags­leg hug­tök. Hvers­dags­leg í þeim skiln­ingi að á hverjum degi fæð­ist fjöldi barna og fjöld­inn allur af konum ganga á degi hverjum með fjöld­ann allan af börnum. 

Til að átta sig á því hversu hvers­dags­legur atburður fæð­ing er má líta á tölur Hag­stof­unnar. Samkvæmt Hag­stof­unni náði frjó­semi íslenskra kvenna sögu­legu lág­marki árið 2018 en engu að síður fædd­ust þó 4.228 börn á Íslandi það árið. Til sam­an­burðar fædd­ust alls 135.865.000 ein­stak­lingar í heim­inum öllum árið 2017. 

En þótt með­göngur, fæð­ingar og sæng­ur­lega séu af ósköp hvers­dags­legum toga lýsa margar konur þessum atburðum sem ein­stökum, jafn­vel því ein­stakasta sem þær upp­lifa.

Það ein­staka á heima í hinu hvers­dags­lega og hvergi á það jafn vel við og þegar kemur að þessum agn­arsmáu og í senn risa­stóru atvikum og augna­blikum. 

Það sem gerir reynslu kvenna svo magn­aða felst einmitt í því hversu …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Að eignast barn

ViðtalAð eignast barn

„Stundum upp­lifi ég eins og þetta sé allt draumur“

Alma Mjöll Ólafs­dóttir var á leið í ferða­lag með kærast­anum og vinum hans, þegar hún komst að því að morgni brott­far­ar­dags að hún væri barns­haf­andi. Það var slökkt á síma kærastans, allt þar til hann var mættur með fulla rútu af fólki að sækja hana. Leynd­ar­mál­inu hvísl­aði hún að honum á bens­ín­stöð í Borg­ar­nesi. Þau Kári Ein­ars­son ræða hér upp­lifun­ina, með­göng­una og það sem bíður þeirra.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár