„Hundrað prósent bara hormónar, líkaminn, dýrið“

Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir er komin á steypir­inn, gengin 37 vikur með sitt fyrsta barn og ræðir hvað hefur komið á óvart á með­göng­unni, hvað var best og hvað var verst. Á þessum tíma hefur hún kynnst nýjum hliðum á sjálfri sér og farið að sjá lífið í öðru ljósi.

„Hundrað prósent bara hormónar, líkaminn, dýrið“

„Ég er alveg ógeðs­lega ólétt á hverjum degi núna. Áður var ég suma daga minna ólétt og aðra daga meira ólétt. Þá hugs­aði ég ekki á hverjum degi: Ég er ekk­ert nema ólétt kona. Það er alveg þannig núna,“ segir Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir, sem á þeirri stundu er við­talið er tekið, er gengin 37 vikur á leið með sitt fyrsta barn. 

Blaða­maður, sem sjálf er gengin 32 vikur á leið með sitt fyrsta barn, hittir Sölku, eins og hún er kölluð, á kaffi­húsi í miðbæ Reykja­víkur. 

Salka sýpur á hafra­latté og ég fæ mér sopa af jasmín­perlu-teinu mínu. Við and­vörpum báðar aðeins, hvor á eftir annarri, og svo aðeins í kór. Við afsökum and­varpið nán­ast sam­tímis og Salka segir mér frá því að hún þurfi ótt og títt að sann­færa fólk í kringum sig að hún sé ekki að and­mæla því með því að and­varpa. Við tölum aðeins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Að eignast barn

ViðtalAð eignast barn

„Stundum upp­lifi ég eins og þetta sé allt draumur“

Alma Mjöll Ólafs­dóttir var á leið í ferða­lag með kærast­anum og vinum hans, þegar hún komst að því að morgni brott­far­ar­dags að hún væri barns­haf­andi. Það var slökkt á síma kærastans, allt þar til hann var mættur með fulla rútu af fólki að sækja hana. Leynd­ar­mál­inu hvísl­aði hún að honum á bens­ín­stöð í Borg­ar­nesi. Þau Kári Ein­ars­son ræða hér upp­lifun­ina, með­göng­una og það sem bíður þeirra.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár