Á sviði Þjóð­leik­húss­ins Ebba var á við­skipta­fræði­braut í mennta­skóla og var ekki með áætl­anir um að verða leik­kona. Þegar hún fékk vinnu sem dresser í barna­sýn­ingum heill­að­ist hún hins vegar að leik­hús­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Nei-in gerðu mig sterkari“

Leikkon­unni Ebbu Katrínu Finns­dóttur var tvisvar synjað um inn­göngu í nám í Leik­list­ar­deild LHÍ. Hún sneri sér að verk­fræði og íhug­aði að láta leikkonu­draum­inn lönd og leið. Hún sótti um í þriðja sinn með sem­ingi, flaug í gegn í það skipti og hefur síðan leikið fjölda áhuga­verðra hlut­verka. Hún er í þremur stórum hlut­verkum hjá Þjóð­leik­hús­inu á leik­ár­inu sem nú stendur yfir.

Orkan sem stafar frá sviði Kúlunnar í Þjóð­leik­hús­inu, meðan á leik­sýn­ing­unni Þitt eigið leik­rit II – Tíma­ferða­lag stendur yfir, er áþreif­an­leg. Hver ein­asti áhorf­andi sog­ast inn í atburða­rás­ina því fyrir framan hvern og einn þeirra er fjar­stýr­ing sem gerir þeim kleift að stjórna fram­vind­unni ásamt öðrum áhorf­endum. Meiri­hlut­inn ræður því hvaða sena kemur næst, hvort þeir ferð­ist inn í fram­tíð­ina eða for­tíð­ina, út í geim, inn í Villta vestrið eða aftur á for­sögu­lega tíma. Svo oft fá áhorf­endur að velja að það lædd­ist að und­ir­rit­aðri sá grunur að þetta gæti nú eig­in­lega ekki verið satt, þetta væri lík­lega allt of krefj­andi fyrir leik­ar­ana að leggja allar þessar ólíku leiðir á minnið. Eru fjar­stýr­ing­arnar ekki bara í þykjust­unni? Aldeilis ekki, segir Ebba Katrín Finns­dóttir, sem fer með eitt af aðal­hlut­verkum sýn­ing­ar­innar. Hún tekur hins vegar undir að hlut­verkið sé mjög krefj­andi. „Hand­ritið er um 160 blað­síður af texta, sem ætti að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár