Mynd: Heiða Helgadóttir

Tryggingafélagið er að „þurrka mig út fjárhagslega og andlega“

Halldór Ragnar Hall­dórs­son var trygg­inga­sali til 25 ára. Eftir alvar­leg veik­indi fyrir rúmum ára­tug varð Halldór öryrki með liða­gigt og síþreytu og þurfti að reiða sig á afkomu­trygg­ingu frá trygg­inga­fé­lag­inu. Í fyrra ákvað félagið, eftir mat læknis sem er ekki gigt­ar­læknir, að helm­inga útgjöld til hans. Fjöldi gigt­ar­lækna hafa stað­fest óvinnu­færni Halldórs, en það hefur ekki haggað stöðu trygg­inga­fé­lags­ins. Nú bíður hann og fjöl­skylda hans eftir yfir­mati og hugs­an­legu dóms­máli. Sjóvá segir að mál Halldórs sé í „eðli­legum far­vegi“.

Trygg­inga­fé­lagið Sjóvá-Almennar lækk­aði afkomu­trygg­ingu Halldórs Ragnars Hall­dórs­sonar eftir að hann fyllti út tjóna­skýrslu með röngum hætti. Halldór, sem vann áður sem trygg­inga­sölu­maður, meðal ann­ars fyrir Sjóvá, hefur verið óvinnu­fær eftir afleið­ingar lífs­hættu­legs æða­bólgu­sjúk­dóms árið 2008, en með­ferðin skildi eftir sig var­an­legan skaða á líf­færum og vefjum í lík­ama hans. Hann þjá­ist í dag af krónískum verkjum og er með grein­ingu á vefja­gigt og síþreytu.

Halldór fyllti út tjóna­skýrslu í febr­úar 2018 eftir óhapp þar sem hann slas­að­ist á öxlum. Hann kennir heila­þoku vegna verkja um að í hugs­un­ar­leysi hafi hann skrifað vinnu­færni sína sem 50 pró­sent í stað 20, en hann hefur ekki getað unnið meira en 30 pró­sent í rúman ára­tug. Sjóvá kall­aði eftir nýju mati frá bækl­un­ar­lækni sem ein­blíndi á æða­bólgu­sjúk­dóm­inn sem liggur niðri í stað raun­veru­legrar stöðu Halldórs. Hann úrskurð­aði Halldór vinnu­færan að hálfu leyti eftir við­tal sem Halldór segir að hafi aðeins varað í tíu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár