„Ég er sami maður og maður les um í blöð­unum sem „þving­aði hana, klæddi úr bux­unum og dóp­aði“. Við erum allir á sama stalli.“ Mynd: sviðsett / unsplash

„Ég er dæmdur fyrir nauðgun”

Ungur strákur var dæmdur fyrir að hafa nauðgað vin­konu sinni. Hann gekkst við gjörðum sínum og ját­aði brot sitt fyrir dómi. Hér veitir hann inn­sýn í hans eigin upp­lifun af brot­inu, hugs­unum í kjöl­far þess og við­horfum hans til eigin gjörða. Sér­fræð­ingar sem koma að mál­efnum þolenda og ger­enda eru flestir á þeirri skoðun að umræðan sé mik­il­væg, þó að það sé við­kvæmt að ræða við ger­endur.

Gerendur kyn­ferð­is­of­beldis fara huldu höfði í íslensku sam­fé­lagi þrátt fyrir að kyn­ferð­is­brot séu það algeng að talað er um nauðg­un­ar­menn­ingu. Birt­ing­ar­myndir nauðg­un­ar­menn­ingar eru meðal ann­ars þær að ofbeldi er normalíserað, þolendur gerðir ábyrgir og ger­endur afsak­aðir. Þolendur ofbeldis hafa á und­an­förnum árum varpað ljósi á áhrif og afleið­ingar ofbeldis og fjöl­margar birt­ing­ar­myndir þess á meðan ger­endur gang­ast sjaldan við gjörðum sínum. Ein af helstu óskum þolenda ofbeldis eru að ger­endur þeirra gang­ist við brot­inu, taki ábyrgð og afleið­ingum og breyti hegðun sinni til fram­búðar. Almenn for­dæm­ing og opin­ber umræða um ofbeldi hjálpar til við að upp­ræta það og styður við að ger­endur hætti að beita ofbeldi. Sér­fræð­ingar sem rætt var við voru á því að að raddir ger­enda þyrftu að heyr­ast og sér í lagi þegar ekki væri um yfir­klór eða rétt­læt­ingar að ræða. Eft­ir­far­andi umfjöllun er eftir frá­sögn ger­anda sem dæmdur er fyrir nauðgun. Þar sem um frá­sögn ger­anda …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár