Viðtal

Endaði á bráða­mót­töku eftir son­ar­missi

Óskar Páll Dan­í­els­son var 32 ára þegar hann lést í slysi í fjall­göngu. Líf hans nán­ustu breytt­ust við frá­fall hans. „Ég fór tvisvar upp á bráða­mót­töku af því ég hélt ég væri að fá hjarta­á­fall,“ segir móðir hans, Herdís Hjör­leifs­dóttir. „Mér var svo illt í hjart­anu.“ Hún segir að sökn­uð­ur­inn sé svo hroða­legur að skyn­semin nái ekki alltaf yfir­hönd­inni. Herdís segir jafn­framt að for­eldrar sem missa barn eigi að gefa sér góðan tíma í að syrgja og þiggja alla þá hjálp sem býðst.

20 mín. lestur

Viðtal

Synda­af­lausn Kára Stef­áns­sonar

„Ég er hvat­vís óþverri,“ segir Kári Stef­áns­son, en bar­átta hans fyrir hjálp til þeirra veik­ustu bendir til ann­ars. Kári segir frá sög­unni sem hann hefur að segja heim­inum. Hann ræðir um genetískar til­hneig­ingar, heil­ann sem er hann, hjarta hans sem hneig­ist erfða­fræði­lega til þess að van­still­ast og rang­indin sem fel­ast í því að hann er auð­maður á meðan systir hans dregur varla fram lífið af kenn­ara­launum. Hann segir líka frá stærstu eft­ir­sjánni, sem leiðir af mestu sigrunum.

Myndband29 mín. lestur

Viðtal

Barns­missir breytti öllu

Svein­björn Svein­björns­son lést af slys­förum sum­arið 1980, þegar hann var níu ára gam­all. Faðir hans, Svein­björn Bjarna­son, segir að þótt 36 ár séu liðin frá slys­inu hafi lífið aldrei orðið samt aftur. Eftir son­ar­miss­inn breytt­ist sýn hans á það sem skiptir mestu máli í líf­inu og hann fór aftur í nám. Und­an­farin ár hefur hann hjálpað öðrum í sömu sporum í gegnum Birtu, lands­sam­tök for­eldra sem hafa misst börn eða ung­menni skyndi­lega.

11 mín. lestur

ViðtalFjölmiðlamál

Litríkt líf konu sem fellur ekki í formið

Þrátt fyrir að hafa mætt mót­læti í lífi og starfi hefur Margrét Erla Maack aldrei lagt árar í bát og heldur ótrauð áfram að feta sinn eigin veg sem sjón­varps­kona, útvarps­stýra, sirkus­stjóri, dans­ari, pistla­höf­undur, grínisti og alt mulig kona. Margrét talar um óþægi­lega fundi með Jóni Gnarr, tjáir sig um orðin sem gerðu allt vit­laust og hót­anir um nauðgun.

25 mín. lestur

ViðtalBarnavernd í Noregi

„Ég rændi barn­inu til að bjarga því“

Helena Brynj­ólfs­dóttir yfir­gaf allar ver­ald­legar eigur sínar og vinnu í Noregi til þess að flýja til Íslands með barna­barnið, 5 ára gamlan dreng, sem norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vildu vista hjá ókunn­ugu fólki til 18 ára ald­urs. Barna­verndin í Noregi krefst þess að íslensk stjórn­völd afhendi barnið og hún gæti verið ákærð fyrir barns­rán.

16 mín. lestur

ViðtalForsetakosningar 2016

Líf og drif­kraftur Guðna: Feimni, föð­ur­missir, skiln­aður og sköpun sög­unnar

Ef fram fer sem horfir verður Guðni Th. Jóhann­es­son næsti for­seti Íslands. Þessi hæg­láti og takt­fasti maður hafði, þangað til fyrir nokkrum vikum, látið sér nægja að skrifa um íslenska sam­tíma­sögu, en er nú búinn að vinda sér í for­grunn hennar. Guðni segir frá föð­ur­miss­inum, feimn­inni, skiln­að­inum, drif­kraft­inum og kosn­inga­bar­átt­unni.

30 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár