Mynd: Kristinn Magnússon

Endaði á bráðamóttöku eftir sonarmissi

Óskar Páll Dan­í­els­son var 32 ára þegar hann lést í slysi í fjall­göngu. Líf hans nán­ustu breytt­ust við frá­fall hans. „Ég fór tvisvar upp á bráða­mót­töku af því ég hélt ég væri að fá hjarta­á­fall,“ segir móðir hans, Herdís Hjör­leifs­dóttir. „Mér var svo illt í hjart­anu.“ Hún segir að sökn­uð­ur­inn sé svo hroða­legur að skyn­semin nái ekki alltaf yfir­hönd­inni. Herdís segir jafn­framt að for­eldrar sem missa barn eigi að gefa sér góðan tíma í að syrgja og þiggja alla þá hjálp sem býðst.

Haustið 1979 eign­að­ist Herdís Hjör­leifs­dóttir son­inn Óskar Pál ásamt þýskum manni, Daníel Dieter Meyer. Rúmum þrjá­tíu árum síðar féll Óskar Páll frá með vof­legum hætti þegar hann lenti í banaslysi í fjall­göngu. Herdís segir hér sögu sína, allt frá því að son­ur­inn var hætt kom­inn í fæð­ing­unni og það þurfti að taka hann með bráða­keis­ara­skurði og þar til hún stóð frammi fyrir miss­inum. 

Fjöl­skyldan bjó á Íslandi fyrstu árin en Óskar Páll var sex ára þegar þau þau til Þýska­lands. Eldri bróðir hans, Friðrik var þá 12 ára en sá yngsti, Berg­steinn, var nýfæddur. 

„Óskar Páll var mjög skond­inn krakki. Hann var með miklar krullur sem fólk var alltaf að strjúka og hann þoldi þær ekki. Hann var fimm ára þegar hann bað hár­greiðslu­konu um að klippa krull­urnar af.  Hann sagði eftir að hann varð full­orð­inn að ef hann ætti eftir að eign­ast börn þá von­aði hann að þau fengju ekki krullur.“ Dóttir hans státar af ljósu hári og fá krull­urnar aldeilis að njóta sín.

„Hann var oft með svo­lítil skrípa­læti en var líka alvöru­gef­inn. Hann var rosa­lega brosmildur og varð strax ofboðs­lega ábyrgð­ar­fullur. Þegar við vorum úti að labba fannst honum ég aldrei passa nógu vel upp á litla bróður hans sem honum fannst ganga of nálægt göt­unni. Óskar Páll hafði alltaf sterkar skoð­anir á hlut­unum. Kenn­ar­arnir sögðu á for­eldra­fundum að ef krakk­arnir ættu að ganga í hring þá gengi Óskar Páll alveg örugg­lega öfugan hring.

Hann var 12 ára þegar hann ákvað að fara í Waldorfskólann og lagði það á sig að fara út úr húsi klukkan sex að morgni, taka stræó á járn­braut­ar­stöð­ina, fara með lest í næstu borg, Braunschweig, og þaðan með spor­vagni í skól­ann.

Hann átti fáa en ein­stak­lega góða vini og hafði þann eig­in­leika að snerta við hjörtum þeirra sem hann kynnt­ist á lífs­leið­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár