Mynd: Heiða Helgadóttir

Litríkt líf konu sem fellur ekki í formið

Þrátt fyrir að hafa mætt mót­læti í lífi og starfi hefur Margrét Erla Maack aldrei lagt árar í bát og heldur ótrauð áfram að feta sinn eigin veg sem sjón­varps­kona, útvarps­stýra, sirkus­stjóri, dans­ari, pistla­höf­undur, grínisti og alt mulig kona. Margrét talar um óþægi­lega fundi með Jóni Gnarr, tjáir sig um orðin sem gerðu allt vit­laust og hót­anir um nauðgun.

Margrét Erla Maack er marg­höfða skrímsli. Frá unga aldri hefur hún fetað sína eigin ótroðnu slóð. Hvar sem hún stingur niður fæti, hvort sem það er í útvarpi, sjón­varpi, á sviði, í leik­húsi eða á brjóst­unum með Sirkus Íslands, er eftir því tekið. Þrátt fyrir að vera ung að árum hefur hún lifað lit­ríku lífi og er engan veg­inn orðin södd. Nú síð­ast vakti hún athygli fyrir heið­ar­lega lýs­ingu á kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir í mynd­bandi fyrir Druslu­göng­una og svo í kjöl­farið kald­hæðna beiðni sína að Vest­manna­ey­ingar ættu vin­sam­leg­ast að nauðga heima hjá sér, í umræðum um kyn­ferð­is­brot á þjóð­há­tíð.

Til að byrja á byrj­un­inni segir Margrét for­eldra sína ekki vissa um hvort getn­aður hennar hafi átt sér stað í Nice í Frakk­landi eða Lúx­em­borg „en þau full­yrða samt að það sé ástæðan fyrir því að mér finnst svo gaman að hafa það næs og lúx­us­legt“. Segist hún lengi hafa verið feitasta barn á Íslandi, sem hafi gert það að verkum hversu lengi hún var að læra að ganga. Þrátt fyrir þyngd­ina seg­ist hún hafa verið veru­lega mat­vönd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið undanfarið ár