Mynd: Kristinn Magnússon

Mörkin á milli meðvitundar og meðvitundarleysis

Hildur Yeoman skapar lif­andi list fyrir Lista­há­tíð í Reykja­vík þar sem hún tvinnar saman ólíkum list­formum.

Hildur Yeoman fata­hönn­uður er þekkt fyrir fjöl­breyttar sýn­ingar en á Lista­há­tíð í Reykja­vík verður hún með inn­setn­ingu þar sem hún teflir saman hönnun, ljós­myndun, mynd­list og alls kyns gjörn­ingum. Hildur tekur á móti blaða­manni á vinnu­stofu sinni á Lauga­vegi þar sem hún hefur unnið að sýn­ing­unni síð­ustu þrjá mán­uði. „Við erum búin að vera á fullu að vinna að þessu síðan í mars, þar sem ég hef verið hér frá níu á morgn­ana til níu á kvöldin,“ útskýrir hún. Þema sýn­ing­ar­innar eru mörkin á milli með­vit­undar og með­vit­und­ar­leysis, þar sem draumar, martraðir og ofskynj­anir koma við sögu. Áhorf­and­anum er boðið að ganga inn í óræðan heim þar sem ólíkar list­greinar mæt­ast undir yfir­skrift­inni Transcendence, þar sem lagt er upp á að fara inn á mörk drauma og svefns og haldið er í ferða­lag um þá hand­an­veru sem er mann­inum hvort tveggja kunn­ug­leg og fram­andi í senn. Þetta kann ef til vill að hljóma drunga­lega en Hildur segir aðð svo sé ekki endi­lega raunin, sýn­ingin sé frekar björt. „Þú ræður auð­vitað hvort þú hugsar um martraðir eða drauma. Þetta í raun bæði, það er eitt­hvað dimmt í þessu en bjart líka.“

Draumaheimur tískunnar  

Hug­myndin að sýn­ing­unni kom fyrst til Hildar í fyrra þegar hún var að vinna með blóma­seyði og ást­ar­galdra. „Í fyrra var ég að vinna með íslenskar jurtir og það að blanda réttu blómunum saman, svo þau mynd­uðu ást­ar­galdur eða frama­konuseyð­inn, „power-spell“, sem á að auka sjálfs­ör­yggi okkar og kraft. Núna langar mig hins vegar að vinna meira með róandi plöntur, eitt­hvað sem hjálpar til með svefn og eykur draum­farir. En það var þar sem þetta byrj­aði.“

Hvernig tengir þú saman drauma og raun­veru­leika? „Fyrir mér er tíska svo­lítið eins og að búa til drauma­heim. Hluti af þessu er vara sem þú þarft að klæð­ast og þarf að vera praktísk. Hin hliðin á því er þessi drauma­heimur eins og ég sé hann. Ég hef mik­inn áhuga á að skapa alls kyns heima með ólíku fólki,” útskýrir hún.

„Ég er líka búin að vera að vinna með kerti sem inni­halda þessar jurtir og það er mjög mikið af kert­ar­effum í föt­unum,“ segir Hildur og sýnir blaða­manni tvær flíkur sem hún hefur unnið út frá kertum. Á annarri þeirra hanga margir hvítir þræðir sem líkj­ast lek­andi vaxi og á hinni spila kerti stórt hlut­verk í mynstr­inu.  

Galdur í listum 

Aðspurð hvort hún og sam­starfs­fólk hennar sé að fara að galdra á sýn­ing­unni seg­ist hún ekki geta orðað það þannig. „Fyrir mér felst mik­ill galdur í listum. Mér finnst spenn­andi að stefna list­formum saman til að skapa spenn­andi heim. Það verður hins vegar boðið upp á draum­heima­drykk sem þau í Foss Distill­ery gera, með því að blanda saman blóma­dropum og íslenskum birki­vodka.“ Hún þver­tekur þó fyrir að þetta sé ein­hvers konar ofskynj­un­ar­lyf, meira í ætt við róandi blóama­dropa. „Eins og ég segi þá er þetta eitt­hvað sem er hugsað til að hjálpa til við svefn og auka draum­farir, ekki ofskynj­un­ar­lyf. Ég er ekki að fara að eitra fyrir fólki,“ segir Hildur og hlær. Hún seg­ist hafa verið í sam­bandi við seið­konu sem heitir Krist­björg og er frá Seyð­is­firði. „Hún er blóma­dropa­snill­ingur og ég hef nýtt mér hæfi­leika hennar á þessu sviði. Það er þannig þegar þú ert að vinna stór verk­efni að það hjálpar að vera með val­inn mann í hverju horni.“

Gengið inn í gjörning 

Að sýn­ing­unni standa einnig Saga Sig­urð­ar­dóttir ljós­mynd­ari, Daníel Björns­son mynd­list­ar­maður, Máni Sig­fús­son víd­eólista­maður, Jófríður Áka­dóttir tón­list­ar­kona og Val­gerður Rún­ars­dóttir dans­höf­undur. Opnun fer fram á föstu­dag­inn kl. 20 í Lækna­minja­safn­inu á Sel­tjarn­aresi, frítt er inn og allir vel­komnir. „Húsið verður opnað á slag­inu átta og við­burð­ur­inn hefst um leið þannig að fólk gengur beint inn í gjörn­ing­inn, sem stendur í 40 mín­útur. Þetta verður ekki hefð­bundin tísku­sýn­ing en þarna verða módel, hljóm­sveit, dans­arar og fleira sem á að koma á óvart.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár