Johan Galtung Stærð­fræð­ingur, lög­fræð­ingur, félag­fræð­ingur og frið­ar­sinni.

Faðir friðarins: „Svona á fólk ekki að hegða sér“

Eftir að hafa 12 ára gam­all horft upp á föður sinn hand­tek­inn af Gestapó ein­setti hinn norski Johan Galtung sér að stuðla að friði í heim­inum. Hann hefur verið milli­göngu­maður stríð­andi fylk­inga í átökum víða um heim und­an­farna ára­tugi og segir lyk­il­inn að sáttum vera að sjá hið góða í öllu fólki.

Norski stærð­fræð­ing­ur­inn, félags­fræð­ing­ur­inn og faðir hinna svoköll­uðu frið­ar­fræða, Johan Galtung, kom á dög­unum til lands­ins og hélt hér erindi. Á löngum ferli sínum hefur Johan verið einn helsti milli­göngu­maður í frið­ar­við­ræðum stríð­andi fylk­inga víða um heim, á sama tíma og hann hefur sinnt fræði­störfum í grein­inni. Johan tók sér tíma þegar hann var á land­inu og sett­ist niður með blaða­manni og fór yfir líf sitt og stöð­una í heims­mál­unum.

„Þetta hófst allt með her­námi þjóð­verja í Noregi.“ Eina kalda nótt í febr­úar vakn­aði 12 ára gam­all Johan við það að Gestapó, leynilög­regla nas­ista, mætti heim til Galtung fjöl­skyld­unnar og hand­tók faðir hans og fór með í fanga­búðir. Eftir stóðu Johan og móðir hans tvö ein. Faðir hans var hand­tek­inn í umfangs­miklum aðgerðum nas­ista til þess að útrýma þeim sem þeir töldu vera að vinna með anspyrn­unni og við að veita eng­lend­ingum upp­lýs­ingar, en þeir stund­uðu loft­árásir á Noreg á þessum tíma. „Á hverjum morgni gátum við búist við fyr­ir­sögn­inni „Dr. Galtung tek­inn af lífi sem svar við hroða­verkum eng­lend­inga.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár