Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég rændi barninu til að bjarga því“

Helena Brynj­ólfs­dóttir yfir­gaf allar ver­ald­legar eigur sínar og vinnu í Noregi til þess að flýja til Íslands með barna­barnið, 5 ára gamlan dreng, sem norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vildu vista hjá ókunn­ugu fólki til 18 ára ald­urs. Barna­verndin í Noregi krefst þess að íslensk stjórn­völd afhendi barnið og hún gæti verið ákærð fyrir barns­rán.

„Þegar við sátum í flug­vél­inni heyrðum við sírenu­væl. Þá fór kaldur hrollur um mig og ég hvítn­aði öll upp,“ segir Helena Brynj­ólfs­dóttir, sem fyrir nokkrum vikum síðan keypti flug­miða fyrir sig, tví­tuga dóttur sína og fimm ára gam­alt barna­barn sitt og flúði til Íslands frá Noregi. Helena gæti verið ákærð fyrir barna­rán í Noregi en barna­verndin þar í landi hefur kraf­ist þess að íslensk stjórn­völd hafi upp á drengnum, fjar­lægi hann með lög­reglu­valdi og komi honum upp í fyrstu flug­vél aftur til Noregs svo hægt sé að vista hann hjá ókunn­ugu fólki 

Helena flutti til Krist­ans­and í Noregi árið 2013 í leit að betra lífi fyrir sig, dætur sínar tvær og barna­barnið. Hún var ekki að flýja skuldir eins og svo margir sem flytja til Noregs. Mennta­kerfið og mögu­leik­inn á að eign­ast eitt­hvað í líf­inu lað­aði Helenu að en hún var á leigu­mark­aði á Íslandi eins og þús­undir ann­arra, átti lítið sparifé og sá ekki fram á að geta fjár­fest í íbúð, eða eins og hún segir sjálf: „Mig lang­aði að eiga mögu­leika á því að eign­ast eitt­hvað og skilja eitt­hvað eftir mig fyrir börnin mín. Ég sá það bara ekki ger­ast á Íslandi og því flutti ég með fjöl­skyld­una til Noregs.“

Barna­barnið hennar var aðeins tveggja ára gam­alt þegar þau fluttu árið 2013 en þegar út var komið fór Helena strax í það að verða honum úti um leik­skóla­pláss sem gekk vel. Flutn­ingur fjöl­skyld­unnar gekk eins og í sögu fyrsta árið en þá fór að halla undan fæti hjá dóttur Helenar, móður barns­ins.

„Hún flækt­ist inn í slæman félags­skap í Noregi sem hafði mikil áhrif á hana. Hún sökkti sér í neyslu og var ekk­ert inni á heim­il­inu. Ég sá um barnið alla daga eins og ég hafði í raun gert frá fæð­ingu. Neyslan hafði þau áhrif að hún var ekki til staðar fyrir barnið. Hún kynnt­ist strák í þessum félags­skap sem var í afskap­lega mik­illi neyslu líka og þau fóru að búa saman en allan tím­ann var ég með barnið fyrir utan eina og eina heim­sókn þar sem ég fór með barnið til dóttur minnar. Einn dag­inn, þegar hún er ekki heima, þá tekur þessi kær­asti hennar brjál­æðiskast og rústar allri íbúð­inni. Sker mublurnar hennar og brýtur allt og bramlar. Lög­reglan var kölluð til og þegar hún mætir á svæðið þá tekur hún eftir barna­leik­föngum í íbúð­inni. Þá er norska barna­verndin kölluð til og þannig hefst þessi martröð sem ekki sér fyrir end­ann á í dag,“ segir Helena.

„Þeir voru að koma þrisvar 
til fjórum sinnum í viku í yfir tvö ár.“

Þess ber að geta að faðir barns­ins hefur ekki verið við­rið­inn upp­eldi þess og gerir ekk­ert til­kall til for­sjár. Faðirinn er íslenskur og stendur fjöl­skylda föð­urs­ins við bakið á Helenu og studdi ákvörðun hennar að flýja með barnið til Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár