Svein­björn Bjarna­son. „Það sem áður var verð­mætt í huga manns varð verð­minna eða verð­laust; en hitt sem fékk allt í einu meira gildi. Það fékk meira gildi að vera saman og reyna að verja meiri tíma með allri fjöl­skyld­unni.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Barnsmissir breytti öllu

Svein­björn Svein­björns­son lést af slys­förum sum­arið 1980, þegar hann var níu ára gam­all. Faðir hans, Svein­björn Bjarna­son, segir að þótt 36 ár séu liðin frá slys­inu hafi lífið aldrei orðið samt aftur. Eftir son­ar­miss­inn breytt­ist sýn hans á það sem skiptir mestu máli í líf­inu og hann fór aftur í nám. Und­an­farin ár hefur hann hjálpað öðrum í sömu sporum í gegnum Birtu, lands­sam­tök for­eldra sem hafa misst börn eða ung­menni skyndi­lega.

Svein­björn Svein­björns­son fædd­ist á fal­legum febr­ú­ar­degi árið 1971. Hann ólst upp í Neðra Breið­holti og lék sér meðal ann­ars að bílum og legókubbum. „Hann var óskap­lega hægur og yfir­veg­aður,“ segir faðir hans, Svein­björn Bjarna­son. „Hann sá stundum lengra fram á veg­inn en maður gerði ráð fyrir og gerði sér grein fyrir. Hann bar umhyggju fyrir þeim sem voru í kringum hann. Einn kenn­ar­inn hans sagði til dæmis í minn­ing­ar­grein að í ein­hverju ferða­lagi hefði hann komið til sín og bent sér á að ein­hverjir af krökk­unum væru að fara óvar­lega; þeir stóðu frammi á brún. Hann skipti sér ekki af því en lét kennar­ann vita.

Ég var lengi í sókn­ar­nefnd Breið­holts­sóknar og fyrir messur þurftum við oft að búa hátíð­ar­sal­inn í skól­anum undir þær en ekki var búið að byggja Breið­holts­kirkju. Það þurfti að tína fram alt­arið, predik­un­ar­stól­inn og fleira. Svein­björn hjálp­aði mér yfir­leitt með þetta. Hann vissi hvað þessir hlutir hétu, hvar þeir áttu að vera og til hvers.

Svein­björn var mikið í kringum elsta bróður sinn í tón­list og vildi hlusta og fylgj­ast með honum spila á bass­ann eða gít­ar­inn. Í dag spyr maður hvar hann væri í dag.“

Svein­björn tekur far­síma upp úr vas­anum og sýnir mynd af syni sínum. Ungur drengur horfir alvar­legum augum á ljós­myndar­ann.

„Ég tala við hann á hverjum degi; ég fer helst aldrei að sofa öðru­vísi en að líta á mynd­ina af honum og segja við hann nokkur orð.“

Hann seg­ist oft finna fyrir nær­veru sonar síns.

Að missa barn

Sumarið 1980 á Kirkju­bæj­ar­klaustri. Svein­björn, níu ára, kvaddi jarð­lífið rétt við stað­inn þar sem talið er að papar hafi búið áður og þar sem nunnur báðu til guðs í klaustri sem þar var um tíma. Sagan segir að þær hafi sungið í helli í Klaust­urs­fjalli.

Þetta er stað­ur­inn þar sem leynd­ar­dóm­arnir eru margir. Svein­björn hrap­aði við Systra­foss á Kirkju­bæj­ar­klaustri og er talið að hann hafi lát­ist sam­stundis. 

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár