Guðni Th. Jóhann­es­son. Segir að for­seti eigi ekki að beita sér í stór­málum, nema fyrir því að þjóðin ráði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Líf og drifkraftur Guðna: Feimni, föðurmissir, skilnaður og sköpun sögunnar

Ef fram fer sem horfir verður Guðni Th. Jóhann­es­son næsti for­seti Íslands. Þessi hæg­láti og takt­fasti maður hafði, þangað til fyrir nokkrum vikum, látið sér nægja að skrifa um íslenska sam­tíma­sögu, en er nú búinn að vinda sér í for­grunn hennar. Guðni segir frá föð­ur­miss­inum, feimn­inni, skiln­að­inum, drif­kraft­inum og kosn­inga­bar­átt­unni.

Þrátt fyrir að hafa skrifað fjölda greina og bóka sem vakið hafa mikla athygli und­an­farin ár, og verið einn fremsti fræði­maður og álits­gjafi lands­ins, var það ekki fyrr en í miðjum felli­bylnum sem skall á íslenskum vald­höfum í kjöl­far leka Panama-skjal­anna sem Guðni Th. stimpl­aði sig ræki­lega inn í með­vit­und þjóð­ar­innar, og þar með umræð­una um hugs­an­lega for­seta­fram­bjóð­endur.

Á meðan lands­menn sátu límdir við skjá­inn og fylgd­ust með ráða­mönnum hlaupa á milli stofn­ana í til­raun til að missa ekki tökin á stjórn­ar­taumunum var Guðni eins og umsjón­ar­maður í dýra­lífs­þætti, og hélt í hönd­ina á undr­andi áhorf­endum, og útskýrði mögu­legar útkomur, vís­aði í dæmi úr stjórn­mála­sög­unni og veitti far­s­anum þá jarð­teng­ingu sem hann svo stór­lega vant­aði.

„Ég var alveg hand­viss um að það kæmi öfl­ugur kven­fram­bjóð­andi fram.“

Takt­ur­inn í atburða­rásinni hafði fram að þessu verið tölu­vert hæg­ari hjá Guðna, enda með fádæmum rólegur og orð­var maður. „Fyrir ára­mót höfðu sumir spurt mig hvort ég myndi sýna því áhuga að bjóða mig fram færi svo að Ólafur Ragnar hætti við. Svo færð­ist smá þungi í það þegar hann kynnti ákvörðun sína á nýárs­dag. En ég svar­aði því til að ég vildi ekki fara í þá bar­áttu með öllu sem því fylgdi, meðal ann­ars vegna þess að ég var alveg hand­viss um að það kæmi öfl­ugur kven­fram­bjóð­andi fram. Að ákall tím­ans væri um konu í emb­ættið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár