Mynd: Heiða Helgadóttir

Flúðu helvítið til Íslands

Fjöl­skylda lýsir upp­lausn heim­kynna sinna, umbreyt­ingu þeirra í hel­víti og draumnum um að kom­ast til Íslands, sem rætt­ist eftir eldraunir. Mann­rétt­inda­lög­fræð­ing­ur­inn Hiba Al Jaraki og klæð­sker­inn Maher Al Habbal lýsa hvernig líf þeirra fór niður í hring­iðu og hvernig þau fengu nýtt upp­haf.

„Ég ákvað að fara til Íslands af því á Íslandi eru ekki þessi vopn. Það var fyrsta ástæðan,“ segir Maher Al Habbal, sem flúði stríðs­á­tökin í Sýrlandi, þar sem heim­ili hans hafði verið sprengt upp, eig­in­kona hans var á lista yfir fólk sem Isis vildi afhöfða og barn­ung dóttir þeirra sat stjörf á næt­urnar og starði út í myrkrið.

Leiðin yfir á meg­in­land Evrópu var þyrnum stráð og það tók hann tvær til­raunir að ná loks á land á Ítalíu, þar sem hann fór á netið til að skoða hvar best væri að leita skjóls. Áður hafði hann séð heim­ild­ar­mynd um eld­gos á Íslandi og vissi að þetta væri lítil eyja í Atl­ants­hafi sem lá ekki að landa­mærum ann­arra þjóða, sem var mik­ill kostur í hans huga. Þegar hann komst síðan að því að hér væri hvorki her né vopnuð lög­regla, auk þess sem Ísland var ekki aðeins á lista yfir örugg­ustu þjóðir heims heldur einnig þær ham­ingju­söm­ustu, ákvað hann að freista þess að kom­ast þangað. Þarna vildi hann hefja nýtt líf, þarna vildi hann veita börn­unum heim­ili. Þegar allt annað var horfið frá honum var það þetta sem skipti máli; friður, öryggi og ham­ingja. „Við gátum ekki hugsað okkur að setj­ast að ein­hvers staðar þar sem stríð gæti brot­ist út,“ útskýrir hann. „Hér ríkir stöð­ug­leiki og friður og fólk er ham­ingju­samt.“

Myndirnar sem ásækja hann 

Leiðin til Íslands var bæði löng og ströng og frá­sögnin af flótt­anum reynir á Maher. Í miðri frá­sögn gefur hann merki með hönd­unum um að hann vilji pásu. „Pása,“ segir hann, „ég þarf pásu,“ stendur upp og hverfur inn í eld­hús þar sem hann kveikir skömmu síðar á bland­ara og útbýr veit­ingar á meðan hann er að jafna sig. Stelp­urnar standa upp á eftir honum og hlaupa hlæj­andi um íbúð­ina áður en þær detta aftur í teikni­mynd­irnar. Áður en Maher stóð upp var hann að segja sög­una af því þegar bát­ur­inn sökk og fjöldi fólks sem hafði verið honum sam­ferða drukkn­aði á leið sinni yfir Mið­jarð­ar­hafið.

Eig­in­kona hans, Hiba Al Jaraki, situr eftir í sóf­anum og hallar sér fram til að útskýra hversu erfitt það er fyrir hann að segja þessa sögu, því þegar hann talar um þetta birt­ast mynd­irnar aftur í huga hans, myndir sem ásækja hann og halda fyrir honum vöku að næt­ur­lagi, enda eins og versta martröð.

„Hún vissi að hún væri að deyja en vildi ekki deyja og greip um hann. Hún var kannski fimm ára.“ 

„Eitt situr alltaf í honum,“ segir hún. Þegar Maher kom um borð í bát­inn sá hann strax í hversu slæmu ásig­komu­lagi hann var, en bát­ur­inn var engu að síður svo þétt set­inn að flótta­menn­irnir þurftu að setj­ast klof­vega um borð og raða sér í fang hver ann­ars. Fyrir aftan Maher sat lítil stelpa. „Þegar hún átt­aði sig á hætt­unni greip hún um hann og sagði: „Gerðu það, ekki skilja mig eftir í sjónum.“ Eftir að bátnum hvolfdi leit­aði Maher lengi að henni en þegar hann fann hana loks aftur var hún að drukkna. Hún vissi að hún væri að deyja en vildi ekki deyja og greip um hann. Hún var kannski fimm ára. Hann getur ekki talað um þetta atvik. Hann hefur aðeins einu sinni sagt mér frá þessu og þá var hann grát­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár