FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Leysa upp skatta­skjóls­fé­lagið sem Pálmi not­aði til að flytja fjóra millj­arða til Tortóla

Fons, félag Pálma Har­alds­sonar, var á end­anum í eigu tveggja Tortóla­fé­laga í gegnum Matthew Holdings S.A. í Lúx­em­borg. Nú hefur dóm­stóll í Lúx­em­borg kveðið upp úrskurð um slit á Matthew Holdings sem ekki hefur skilað árs­reikn­ingi frá árinu 2006. Engar opin­berar upp­lýs­ingar eru því til um afdrif 4,2 millj­arða króna arðs frá Fons sem rann tll Lúx­em­borgar frá Íslandi 2007.
FréttirRíkisstjórnin

Furðu­legt hátta­lag for­sæt­is­ráð­herra

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son gegndi emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í tæp þrjú ár. Á þeim tíma tókst honum að verða ein­hver umdeild­asti stjórn­mála­maður íslenskrar stjórn­mála­sögu fyrr og síðar. Hann stígur nú úr ráð­herra­stóli algjör­lega rúinn trausti eftir of marga ein­leiki. Sig­mundur var hljóð­látur tán­ingur sem lét lítið fyrir sér fara, gömul sál sem sprakk út á háskóla­ár­unum. Hann á það til að gera hluti sem fólk klórar sér í koll­inum yfir.

Myndband22 mín. lestur

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Gunn­laugur hefði þurft að greiða 127 millj­ónir í skatt af Tortóla­fé­lag­inu eftir laga­breyt­ing­una

Gunn­laugur Sig­munds­son hefði þurft að greiða tekju­skatt af arð­greiðslu út úr félagi sem hann átti í Lúx­em­borg ef hann hefði greitt arð­inn út eftir árið 2010. Þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son gerðu báðir ráð­staf­anir í aflands­fé­lögum sínum fyrir lag­breyt­ing­una þann 1. jan­úar 2010. Tekju­skatt­ur­inn af arð­greiðsl­unni hefði numið að minnsta kosti 127 millj­ónum eftir 1. jan­úar 2010 en fyrir það hefði lög­bundin greiðsla skatts af arð­inum átt að vera um 35 millj­ónir króna.
Fréttir

Ísland kom við sögu í einni stærstu og flókn­ustu fíkni­efna­rann­sókn FBI fyrr og síðar

Eitt stærsta mark­aðs­svæði í heimi með ólög­leg fíkni­efni var hýst í íslensku gagna­veri. Menn frá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni flugu til Íslands í júní árið 2013 og fengu aðstoð íslenskra lög­reglu­yf­ir­valda við að afla gagna í hinu svo­kall­aða Silk Road-máli. Aðgerð alrík­is­lög­regl­unnar var og er enn í dag gríð­ar­lega umdeild en lög­reglu­yf­ir­völd hér á landi neita að tjá sig um málið.

Mest lesið undanfarið ár