Ris og fall Sig­mundur Davíð reis á skömmum tíma til hæstu hæða innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fall hans var einnig snarpt. Mynd: Pressphotos

Furðulegt háttalag forsætisráðherra

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son gegndi emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í tæp þrjú ár. Á þeim tíma tókst honum að verða ein­hver umdeild­asti stjórn­mála­maður íslenskrar stjórn­mála­sögu fyrr og síðar. Hann stígur nú úr ráð­herra­stóli algjör­lega rúinn trausti eftir of marga ein­leiki. Sig­mundur var hljóð­látur tán­ingur sem lét lítið fyrir sér fara, gömul sál sem sprakk út á háskóla­ár­unum. Hann á það til að gera hluti sem fólk klórar sér í koll­inum yfir.

Í upp­hafi jan­úar árið 2000 gekk maður inn í skóla­stofu nokkra í Gamla skóla Mennta­skól­ans í Reykja­vík. Hann lét lítið fyrir sér fara og tók sér sæti á fremsta bekk. Nemendur í 6-Y, sem voru að hefja loka­önn sína við skól­ann, könn­uð­ust ekki við kauða, og það gerði kenn­ar­inn ekki heldur. Aðspurður sagð­ist mað­ur­inn vera nýr í bekknum. Það gat hins­vegar ekki passað, sagði kenn­ar­inn, sem blað­aði í papp­írum án þess að finna nafn hans á skrá yfir nem­endur. Maðurinn svar­aði því til að verið væri að ganga frá skrán­ingu hans í skól­ann á skrif­stof­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár