Ísland kom við sögu í einni stærstu og flóknustu fíkniefnarannsókn FBI fyrr og síðar

Eitt stærsta mark­aðs­svæði í heimi með ólög­leg fíkni­efni var hýst í íslensku gagna­veri. Menn frá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni flugu til Íslands í júní árið 2013 og fengu aðstoð íslenskra lög­reglu­yf­ir­valda við að afla gagna í hinu svo­kall­aða Silk Road-máli. Aðgerð alrík­is­lög­regl­unnar var og er enn í dag gríð­ar­lega umdeild en lög­reglu­yf­ir­völd hér á landi neita að tjá sig um málið.

Í júní árið 2013 kom hingað til lands rann­sókn­ar­lög­reglu­maður frá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni, FBI, ásamt tveimur lög­fræð­ingum sem voru á vegum banda­rískra yfir­valda. Ferð þeirra var liður í rann­sókn á einu stærsta og flókn­asta fíkni­efna­máli sem alrík­is­lög­reglan hefur tekið að sér á síð­ari árum.

Bandaríska alríkislögreglan
Banda­ríska alrík­is­lög­reglan Menn á vegum FBI komu hingað til lands í að minnsta kosti tvígang í tengslum við rann­sókn­ina á Silk Road.

Rannsókn máls­ins tók þrjú ár og snérist um mark­aðs­svæðið Silk Road sem var að finna á hinu svo­kall­aða myrkra­neti eða „Dark Web“. Aðeins var hægt að kom­ast inn á síð­una með sér­stökum vafra sem heitir Tor en með honum var hægt að sjá þær síður sem vistaðar voru á földu und­ir­neti - neti sem ekki sást með hefð­bundnum leiðum.

„Á Silk Road var hægt að panta nán­ast allar teg­undir af fíkni­efnum, algjör­lega nafn­laust og fengu við­skipta­vinir vöru sína senda heim að dyrum.“

Vafrinn eða Tor-netið var þróað af banda­ríska sjó­hernum fyrir ára­tug og var ætlað að fela hin ýmsu leynd­ar­mál og sam­skipti hers­ins á ver­ald­ar­vefnum. Nær ómögu­legt er að rekja slóð þeirra sem nota Tor-netið og því hefur þetta und­ir­net eða „Deep Web“ orðið hálf­gert skjól þeirra sem stunda hvers kyns ólög­leg við­skipti á ver­ald­ar­vefnum.

Órekjanleg fíkniefnaviðskipti milli landa

Enginn vissi nákvæm­lega hver stjórn­aði mark­aðs­svæð­inu en talið var að eig­andi þess væri not­andi sem gengi undir gælu­nafn­inu Dread Pirate Roberts. Rannsókn alrík­is­lög­regl­unnar beind­ist því fljótt að þessum óþekkta ein­stak­lingi sem virt­ist ráða lögum og lofum á einu stærsta mark­aðs­svæði ólög­legra fíkni­efna í heim­inum.

Á Silk Road var hægt að panta nán­ast allar teg­undir af fíkni­efnum, algjör­lega nafn­laust og fengu við­skipta­vinir vöru sína senda heim að dyrum. Slóð þeirra sem seldu og keyptu fíkni­efni var ekki bara falin með Tor-net­inu því öll við­skiptin fóru fram með raf­ræna gjald­eyr­inum Bitcoin sem, eins og Tor-netið, er órekj­an­legur.

Stundin ræddi við tvo ein­stak­linga sem ekki vildu koma fram undir nafni en eiga það sam­eig­in­legt að hafa nýtt sér mark­aðs­svæði Silk Road.

Íslendingar nýttu Silk Road, einn keypti stera en annar koffín


„Ég var eitt­hvað búinn að lesa um þetta á net­inu og var spenntur fyrir því að skoða hvað væri í gangi þarna. Miðað við umræð­una þá átti að vera hægt að fá nán­ast hvað sem er á Silk Road. Allt frá stinn­ing­ar­lyfjum yfir í heróín. Ég trúði því ekki að þessi síða myndi virka; að þú gætir pantað þér hvaða fíkni­efni sem er og fengið þau send með pósti til Íslands,“ segir einn við­mæl­enda Stund­ar­innar sem freist­að­ist til þess að panta af síð­unni.

Svona leit vefsíðan út
Svona leit vef­síðan út Eins og sést á þess­ari skjá­mynd af Silk Road var hægt að fá allt frá geð­lyfjum yfir í metam­fetamín og MDMA-töflur.

„Ég fór nú ekk­ert í neitt rosa­lega ólög­legt. Vildi ekki vera að taka neinar óþarfa áhættu, ég vildi bara vita hvort þetta virki­lega virk­aði eða ekki. Ég held að ég hafi fundið svona það minnst ólög­lega en það var hreint koff­ín­duft sem kom í töflum. Ég keypti mér Bitcoin og greiddi síðan með honum fyrir koff­ínið og beið síðan eftir því að þetta myndi skila sér í gegnum lúg­una,“ segir við­mæl­and­inn sem ekki þurfti að bíða lengi.

„Nei, ég fékk þetta með flugi og var kom­inn með koff­ín­duftið á eld­hús­borðið heima tæpum tveimur vikum eftir að ég hafði pantað það á myrkra­net­inu.“

Hinn við­mæl­andi Stund­ar­innar tók aðeins meiri áhættu en sá sem keypti sér koff­ín­duft: „Já, ég próf­aði að kaupa stera­töflur. Þetta var ekk­ert rosa­lega dýrt. Ég fékk 100 töflur fyrir fimm þús­und krónur sem er nú tölu­vert ódýr­ara en gengur og ger­ist á þessum mark­aði.“

En varstu ekk­ert smeykur um að vera tek­inn?

„Nei, ég lét merkja pakk­ann öðrum og beið síðan bara rólegur. Hann var kom­inn til mín eftir 18 daga. Ég ætl­aði að prufa þetta aftur og kaupa eitt­hvað annað en þá hafði síð­unni verið lokað.“

Óútskýrð slóð leiddi FBI til Íslands

Þar sem mark­aðs­svæðið sem við­mæl­endur Stund­ar­innar versl­uðu í gegnum var hýst á myrkra­net­inu og studd­ist við órekj­an­legan gjald­eyri var ekki auð­velt að kom­ast að því hverjir stæðu að baki síð­unni. Eina leiðin var að kom­ast að því hvar í heim­inum Silk Road væri hýst - þannig gætu banda­rísk yfir­völd kom­ist yfir nán­ast öll gögn sem tengj­ast síð­unni og fundið út hver stæði á bak­við hana. Þetta átti hins vegar að vera ómögu­legt.

Thor Data Center
Thor Data Center Gagnaver í eigu Advania og er stað­sett í Hafn­ar­firði.

Þrátt fyrir það komst banda­ríska alrík­is­lög­reglan að því hvar Silk Road væri hýst. Hún var hýst í Thor Data Center í Hafn­ar­firði. Til­tölu­lega nýtt gagna­ver sem rekið er af Advania. Þessi upp­götvun alrík­is­lög­regl­unnar er gríð­ar­lega umdeild eða öllu heldur atburð­ar­rásin sem leiddi þá til Íslands.

Alrík­is­lög­reglan gaf til að byrja með engar upp­lýs­ingar um það hvernig þeir fundu út IP-tölu Silk Road á myrkra­net­inu. Sam­fé­lagið sem þarna óx á und­ir­net­inu var slegið. Þetta átti að vera órekj­an­legt og nafn­laust. Þetta átti ekki að geta gerst. Málið var gríð­ar­lega mikið rætt vest­an­hafs og stigu fjöl­margir sér­fræð­ingar í net­ör­yggi fram og töldu að brögð væru í tafli; að alrík­is­lög­reglan hafi hugs­an­lega brotið lög til þess að finna út stað­setn­ingu Silk Road.

„Íslenskur saksóknari sló FBI-fulltrúann út af laginu með aðlaðandi útliti en hún var klædd í pils, með ritaragleraugu og hárið í snúð.“


Þessa útskýr­ingu á upp­götvun alrík­is­lög­regl­unnar er meðal ann­ars að finna í heim­ild­ar­mynd­inni „Deep Web“ sem kom út í fyrra og fjallar um upp­haf Silk Road og enda­lok þess. Þar er því meðal ann­ars haldið fram að alrík­is­lög­reglan hafi brotið sér leið inn í íslenska gagna­verið til þess að stela upp­lýs­ingum um Silk Road og stjórn­endur hennar. Ferð rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins og tveggja lög­fræð­inga hingað til lands hafi því aðeins verið til þess að fá afhendar upp­lýs­ingar lög­lega sem þeir höfðu þegar tryggt sér ólög­lega.

Íslensk lögregluyfirvöld samstarfsfús frá fyrsta fundi


Rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn sem fór fyrir rann­sókn­inni vest­an­hafs heitir Chris Tarbell en hann lýsir því meðal ann­ars í við­tali við Wired-tíma­ritið þegar hann kemur hingað til lands til fundar við íslensk lög­reglu­yf­ir­völd vegna Silk Road. Tarbell lýsir fundi sínum með full­trúum frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þannig að hann hafi verið ann­ars hugar til að byrja með vegna þess hve glæsi­legur íslenskur sak­sókn­ari var við­staddur fund­inn.

„Tarbell var örlítið ann­ars hugar vegna þess hve aðlað­andi sak­sókn­ar­inn var í pilsi með gler­augu eins og aðstoð­ar­kona og hárið í snúð,“ segir meðal ann­ars í ítar­legri umfjöllun Wired um málið. Þá segir einnig að íslensk lög­reglu­yf­ir­völd hafi verið mjög sam­vinnu­fús og að fund­ur­inn hafi ekki tekið nema klukku­tíma. Ekki löngu seinna höfðu íslenskir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn fundið net­þjón­inn sem hýsti Silk Road, tekið afrit af öllum gögnum og afhent Tarbell frá alrík­is­lög­regl­unni.

„Rannsókn FBI hafði leitt í ljós að þessi Ross Ulbricht væri sá sem gengi undir nafn­inu Dread Pirate Roberts og væri stofn­andi og eig­andi Silk Road.“

Áfram hélt sam­starf alrík­is­lög­regl­unnar og lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem lauk með stórri alþjóð­legri aðgerð sem teygði sig til þriggja landa. Það var þann 1. októ­ber 2013 sem sér­sveit ásamt full­trúum frá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni hand­tóku hinn 29 ára gamla Ross Ulbricht á bóka­safni í San Francisco.

Ross Ulbricht
Ross Ulbricht Situr í alrík­is­fang­elsi í Banda­ríkj­unum en hann var dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi án mögu­leika á reynslu­lausn fyrir aðild sína að Silk Road en Ulbricht var tal­inn for­sprakki mark­að­ar­ins.

Alríkislögreglan var á Íslandi þegar Silk Road var lokað í október

Rannsókn FBI hafði leitt í ljós að þessi Ross Ulbricht væri sá sem gengi undir nafn­inu Dread Pirate Roberts og væri stofn­andi og eig­andi Silk Road. Á sama tíma og Ulbricht var hand­tek­inn vest­an­hafs voru teymi á vegum banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar að störfum í Frakk­landi og á Íslandi. Í Frakk­landi lok­uðu full­trúar FBI tölvum sem hýstu afrit af Silk Road en á Íslandi voru örlög þessa stærsta mark­aðs­svæðis með ólög­leg fíkni­efni í heim­inum inn­sigluð. Slökkt var á síð­unni og hald lagt á rúm­lega þrjú hund­ruð og sex­tíu millj­ónir króna í formi raf­ræna gjald­eyr­is­ins Bitcoin.

Í dóms­skjölum kemur fram að Tarbell hafi áætlað að Ulbricht hafi greitt sjálfum sér tæpa níu millj­arða í sölu­laun og að Silk Road hafi velt eitt­hvað í kringum tvö hund­ruð og þrjá­tíu millj­örðum á meðan hún var í gangi. Dóms­málið sjálft vakti gríð­ar­lega athygli en banda­rísk yfir­völd voru harð­á­kveðin í því að setja for­dæmi með því að reyna að fá sem þyngstan dóm yfir Ulbricht. Lög­fræð­ingar hans reyndu hvað þeir gátu að kom­ast yfir skjöl sem sýndu hvernig banda­ríska alrík­is­lög­reglan hefði kom­ist að stað­setn­ingu síð­unnar. Ef þeir myndu ná að sanna að alrík­is­lög­reglan hefði brotið lög við rann­sókn­ina þá væru góðar líkur á því að Ulbricht myndi sleppa með skammir.

Loðin rannsókn og þungur dómur

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan ákvað þá loks­ins að rjúfa þögn­ina um þennan þátt máls­ins. Sagði Tarbell meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla að full­trúar FBI hefðu kom­ist að IP-tölu Silk Road vegna galla í inn­skrán­ing­ar­kerfi síð­unnar. Þetta þótti mönnum hæpið líkt og greint er frá hér að ofan en þrátt fyrir það var engan bil­bug að finna á Tarbell sem harð­neit­aði því að emb­ættið hefði farið ólög­legar leiðir í þessu máli. Lög­fræð­ingar Ulbricht voru strand og virt­ust lenda á vegg í hvert skipti sem leitað var frek­ari upp­lýs­inga um þennan þátt máls­ins.

Silk Road-mál­inu lauk með gríð­ar­lega þungum fang­els­is­dómi yfir hinum 31 árs Ross Ulbricht í febr­úar í fyrra. Ulbricht var fund­inn sekur um pen­inga­þvott, tölvu­glæpi  og sam­særi um að smygla fíkni­efnum. Dómarinn sýndi Ulbricht enga mis­kunn nokkrum mán­uðum seinna og dæmdi hann í lífs­tíð­ar­fang­elsi án mögu­leika á reynslu­lausn þann 29. maí í fyrra. Síðan þá hafa lög­fræð­ingar hans reynt að áfrýja máli hans og lögðu fram slíka beiðni um miðjan jan­úar á þessu ári. Þeir vilja ómerkja dóm­inn og ný rétt­ar­höld en þeir segja að sönn­un­ar­gögn sem tengj­ast tveimur spilltum lög­reglu­full­trúum sem komu að rann­sókn máls­ins hafi verið haldið frá lög­fræð­ingum Ulbricht.

Stálu rafrænum gjaldeyri á meðan þeir rannsökuðu málið

En hvaða spilltu lög­reglu­full­trúar voru það og hvernig tengd­ust þeir mál­inu? Leyni­þjón­ustu­full­trú­inn Shaun Bridges og fíkni­efna­full­trú­inn Carl Force frá DEA komu báðir að rann­sókn Silk Road og eins og áður segir þá tók rann­sóknin þrjú ár. Bridges og Force nýttu sér aðstöðu sína í rann­sókn máls­ins og stálu mörg hund­ruð þús­und doll­urum í raf­ræna gjald­miðl­inum Bitcoin, bæði frá Silk Road-síð­unni sjálfri og banda­rískum yfir­völdum.

Þarna var Silk Road hýst
Þarna var Silk Road hýst Ljós­myndin er tekin innan í Thor Data Center og sýnir hátækni­gáma sem hafa að geyma hund­ruði nafna­þjóna en einn þeirra hýsti Silk Road.

Þeir ját­uðu báðir sekt sína í júní á síð­asta ári. Þær játn­ingar vilja lög­fræð­ingar Ulbricht meina að sýni fram á að brögð hafi verið í tafli við rann­sókn máls­ins og því hafi skjól­stæð­ingur þeirra ekki fengið sann­gjörn rétt­ar­höld. Þegar þetta er skrifað er Ross Ulbricht enn að bíða eftir fréttum af áfrýj­un­inni.

Erlendir fjölmiðlar leituðu til íslenskra yfirvalda en fengu engin svör

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa erlendir fjöl­miðlar reynt að fá upp­lýs­ingar um aðkomu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að rann­sókn máls­ins og aðdrag­anda hennar hér á landi en án árang­urs. Hafa þeir meðal ann­ars sent kæru til lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins en ekki haft erindi sem erf­iði.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gaf það strax út, á sama tíma og þeir gerðu grein fyrir sam­starf­inu við alrík­is­lög­regl­una, að þeir myndu ekki veita frek­ari upp­lýs­ingar um málið. Lög­reglu­emb­ættið hefur staðið við það og því situr eftir sú spurn­ing hvort banda­ríska alrík­is­lög­reglan hafi brot­ist inn í íslenskt gagna­ver til þess að kom­ast til botns í einu flókn­asta og umsvifa­mesta fíkni­efna­máli síð­ari ára.

Stikla úr heim­ild­ar­mynd­inni Deep Web

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár