Brotin barn­æska Ljóst er af lestri dóms­ins að sonur manns­ins bar veru­legan skaða af sam­vistum sínum við föður sinn í æsku. Þrátt fyrir það virð­ast yfir­völd hafa metið það sem svo að hann sé hæfur til að fara einn með for­sjá ann­arra barna sinna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Dæmdur barnaníðingur ekki álitinn hættulegur barni sínu

Einn þyngsti dómur sem fallið hefur, vegna kyn­ferð­is­brots for­eldris gegn barni sínu, féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur nýverið. Þá hlaut faðir sjö ára dóm fyrir ára­langa og grófa mis­notkun á syni sínum. Þrátt fyrir alvar­leika brot­anna sat mað­ur­inn ekki í gæslu­varð­haldi og hann fer enn einn með for­sjá yngri sonar síns.

Hvorki lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu né hér­aðs­sksókn­ari fóru fram á að mað­ur­inn sem nýverið var dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir alvar­leg kyn­ferð­is­brot gegn syni sínum sæti í gæslu­varð­haldi meðan á rann­sókn á máli hans stæði. Þrátt fyrir að dómur sé fall­inn í hér­aðs­dómi getur verið langt þangað til mað­ur­inn hefur sína afplánun. Það gerir hann í fyrsta lagi eftir tæpan mánuð, þegar áfrýj­un­ar­frestur dóms­ins, sem er fjórar vikur, rennur út. Áfrýi hann hins vegar dómnum geta verið nokkrir mán­uðir eða jafn­vel meira en ár þar til afplánun hans hefst.

Þegar rann­sókn á mál­inu hófst, haustið 2017, bjuggu yngri börn hans þrjú öll á heim­ili hans, tvö þeirra undir lög­aldri, þá 17 og 11 ára. Þrátt fyrir alvar­leika brot­anna voru börnin ekki vistuð ann­ars staðar, né mað­ur­inn úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Má úr því lesa að hvorki barna­vernd­ar­yf­ir­völd, sem hafa völd til að taka börn frá for­eldrum séu þeir lík­legir til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár