Mynd: Heiða Helgadóttir

Draumur að eiga dúkkubarn

Nokkrar sein­færar ungar konur hafa að und­an­förnu fengið sér dúkkur sem þær kalla „dúkku­börn“. Meðal ann­ars er um að ræða dúkkur sem fram­leiddar eru erlendis með fólk í huga sem misst hefur barn og vega minnstu dúkk­urnar álíka mikið og fyr­ir­burar en einnig eins og nýfætt barn. Dúkk­urnar eru hand­gerðar og á sumum þeirra eru manns­hár. Lena Ósk Sig­urð­ar­dóttir og Dagmar Ósk Héð­ins­dóttir eru í hópi fyrr­nefndra kvenna og finna þær fyrir mik­illi vernd­ar­til­finn­ingu gagn­vart dúkk­unum, þær láta dúkk­urnar liggja í vöggum og barna­kerrum, þær kaupa á þær barna­föt og hugsa í raun um þær að sumu leyti eins og um börnin þeirra væri að ræða.

Tvær konur heilsa hlý­lega. Sú yngri, Lena Ósk Sig­urð­ar­dóttir, virð­ist halda á nýfæddu barni. Það er hins vegar dúkkan, eða dúkku­barnið, Amelía Ósk. Sú eldri, Lára Dan Dan­í­els­dóttir, er móð­ur­systir Lenu.

Lena heldur þétt utan um dúkku­barnið sitt nærri því allan tím­ann sem við­talið stendur yfir og lítur reglu­lega á það eins og til að athuga hvort það sofi vært.

„Lena var mjög rólegt barn, hún dund­aði sér mikið og var mikil dúkku­stelpa. Svo liðu árin og hún sótti alltaf mikið í það að passa og passar meðal ann­ars barna­börnin mín,“ segir Lára, sem er fjög­urra barna móðir og á 14 barna­börn. „Þráin eftir því að eign­ast barn hefur auk­ist und­an­farin ár og hún fór að gera sér grein fyrir því að hún gæti ekki sjálf átt börn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár