Opnari og ekki eins stressuð eftir að hún fékk dúkkubarn

Dagmar Ósk Héð­ins­dóttir segir að það hafi hjálpað sér mikið að fá dúkku, eða dúkku­barn, í fyrra. „Ég er ekki eins kvíðin eins og ég var,“ segir hún.

Opnari og ekki eins stressuð eftir að hún fékk dúkkubarn
Styðja hana með dúkku­barnið Dagmar Ósk Héð­ins­dóttir með for­eldrum sínum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þriggja manna fjöl­skylda kemur gang­andi inn á kaffi­hús og heldur yngsti fjöl­skyldu­með­lim­ur­inn, ung kona, á dúkku í fang­inu. Þau setj­ast við borð og er dúkkan sett í barna­stól sem er svo stillt upp við borðið eftir að búið er að klæða hana úr bleikri kápu og taka af henni bleika húfu. Dúkkan heitir Harpa Sól og unga konan heitir Dagmar Ósk Héð­ins­dóttir. 

„Mig dreymdi um að eign­ast lítið barn eins og aðrar ungar konur á mínum aldri,“ segir Dagmar og móðir hennar, Harpa Sig­ur­jóns­dóttir, bendir á að skóla­systur Dagmarar séu búnar að vera að eign­ast börn und­an­farin ár. 

„Ég er með ódæmi­gerða ein­hverfu, væga þroska­hömlun og einnig er ég með áráttu- og þrá­hyggjuröskun og kvíða,“ segir Dagmar, sem vinnur hálfan dag­inn á Vinnu- og hæf­ing­ar­stöð þar sem hún meðal ann­ars saumar, smíðar og pakkar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár