Svika­skáld Nú sker ég netin mín nefn­ist nýtt ljóð­verk eftir þær Þóru Hjör­leifs­dóttur, Fríðu Ísberg, Þórdísi Helga­dóttur, Sunnu Dís Más­dóttur, Ragn­heiði Hörpu Leifs­dóttur og Melkorku Ólafs­dóttur. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Kominn tími til að þið takið okkur alvarlega“

Þriðja verk Svika­skálda, Nú sker ég netin mín, er vænt­an­leg í bóka­búðir. Verkið skrif­uðu kon­urnar sex sem mynda skálda­hóp­inn á sum­ar­sól­stöðum í Flatey. Í bók­inni setja þær kerl­ingar á stall. Af hverju? Því kerl­ingar láta hluti ger­ast og leggja sig þegar þær langar.

Nú sker ég netin mín nefn­ist þriðja ljóð­verkið sem þær Sunna Dís Más­dóttir, Fríða Ísberg, Þórdís Helga­dóttir, Ragn­heiður Harpa Leifs­dóttir, Melkorka Ólafs­dóttir og Þóra Hjör­leifs­dóttir semja í sam­ein­ingu undir hinu for­vitni­lega nafni Svika­skáld. Í fyrstu bók skáld­anna fengu þær inn­blástur af svik­ara­heil­kenn­inu sem þær tengdu allar við og í annarri bók­inni könn­uðu þær birt­ing­ar­myndir kven­leik­ans. Í þetta sinn fær kerl­ingin sinn verð­skuld­aða sess. 

Sunna: Það er eitt­hvað sem konur ótt­ast hræði­lega, að vera kerl­ingar. 

Þóra: Kerling er skammar­yrði, enda búið að segja við mann frá því maður var pínu­lítil stelpa: Ekki vera kerl­ing!   

Sunna: Já, bæði í þeim skiln­ingi og líka þeim, að maður eigi alls ekki að eiga flís­peysu. Við skrif­uðum bók­ina á sum­ar­sól­stöðum í Flatey. Þar fórum við að tala um hvað það er ógeðs­lega frelsandi að vera kerl­ing.

Fríða: Og um það hvað kerl­ingar eru ynd­is­legar. 

Sunna: Já. Kerl­ingar láta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár