Gagnrýninn háskólanemi í haldi fyrir að mótmæla Pútín

Rúss­neski stjórn­mála­fræði­nem­inn og Youtube-blogg­ar­inn Egor Zhukov var sak­aður um að hafa stýrt mann­fjölda á mót­mælum með grun­sam­legum handa­hreyf­ingum. Málið var látið niður falla og hann þess í stað sak­aður að breiða út „öfga­stefnu“ á sam­fé­lags­miðlum. Þúsundir mót­mæl­enda hafa verið hand­teknir eftir að leið­togum stjórn­ar­and­stöð­unnar var meinað að bjóða sig fram.

Gagnrýninn háskólanemi í haldi fyrir að mótmæla Pútín

Sjö rúss­neskir mót­mæl­endur hafa nú þegar verið dæmdir fyrir þátt­töku sína í nýlegum mót­mælum í Moskvu, og að hafa stuðlað að „fjölda­ó­eirðum“ í ólög­legri mót­mæla­göngu þann 27. júlí síð­ast­lið­inn. Fjölmenn og stig­magn­andi mót­mæli hafa átt sér stað á götum höf­uð­borgar Rúss­lands síð­ast­liðnar vikur, eða eftir að ljóst varð að fjöl­mörgum fram­bjóð­endum stjórn­ar­and­stöð­unnar yrði ekki gert kleift að bjóða sig fram til þings­ins í Moskvu. Dómstóll í Moskvu stað­festi þann 15. ágúst áfram­hald­andi gæslu­varð­hald yfir sex mót­mæl­endum, en þeirra á meðal var hinn 22 ára gamli stjórn­mála­fræði­nemi Egor Zhukov sem hefur vakið athygli fyrir beitt mynd­bönd á Youtube þar sem hann gagn­rýnir rúss­neskt stjórn­ar­far.

Málið hefur vakið athygli í Rúss­landi en ekki síður utan land­stein­anna. Þá hafa fjöl­margir Rússar lýst yfir stuðn­ingi við mót­mæl­end­urna, þar á meðal frægir tón­list­ar­menn á borð við hinn heims­fræga rapp­ara Oxxxym­iron, sem mætti einmitt fyrir dóm­inn í Moskvu þann 15. ágúst til að hlýða á úrskurð­ar­orð dóm­ar­ans en var gert að bíða fyrir utan. Þrír háskóla­nemar eru á meðal þeirra sem hafa verið í haldi en mál frjáls­lynda stjórn­mála­fræði­nem­ans Zhukov hefur farið hvað hæst enda hafa kenn­arar, starfs­menn og sam­nem­endur hans við HSE háskól­ann í Moskvu tekið sig saman og byggt upp öfl­uga hreyf­ingu honum til stuðn­ings. Dómara bár­ust alls 612 áfrýj­un­ar­beiðnir í máli hans en þar af komu um helm­ingur frá fyrr­nefndum sam­nem­endum og sam­starfs­fólki.

Ný kyn­slóð mót­mæl­endaMikið af ungu fólki hefur sótt mót­mæli rúss­neskra stjórn­ar­and­stæð­inga upp á síðkastið og er jafn­vel talað um nýja kyn­slóð mót­mæl­enda í þessu sam­hengi.

Zhukov var meðal ann­ars sak­aður um að hafa með handa­hreyf­ingum sínum og bend­ingum stýrt hópi mót­mæl­enda í Moskvu, en allt að átta ára fang­els­is­dómur liggur við brot­inu. Sak­sókn­arar drógu fram mynd­band þessu til sönn­unar en verj­endur Zhukov bentu á að hann hefði ein­fald­lega verið að reyna að beina fólk­inu frá umferð­ar­þungri götu. Zhukov ávarp­aði dóm­inn úr fanga­klefa sínum þann 15. ágúst og sagð­ist þakk­látur rúss­neskum stjórn­völdum fyrir að hafa byggt undir mál­stað mót­mæl­enda með harka­legum við­brögðum. Blaða­maður Stund­ar­innar heyrði í tveimur sam­nem­endum Zhukov í Moskvu í lok ágúst, þeim Victoriu Belaiu og Eugen Ocharov, og fékk að heyra meira um umrætt mál sem og mót­mælin sem hafa geisað í land­inu að und­an­förnu.

Uppfært þann 6. sept­em­ber: Ákæru­valdið hefur látið mál gegn sex mót­mæl­endum niður falla, þar á meðal Egor Zhukov. Sak­sókn­arar hafa hins­vegar opnað nýtt mál gegn honum fyrir að hafa breitt út „öfga­stefnu“ á sam­fé­lags­miðlum en hann gæti átt yfir höfði sér allt að fimm ára fang­els­is­dóm verði hann fund­inn sekur. Þá hafa sjö mót­mæl­endur verið dæmdir í allt að fimm ára fang­elsi á síð­ustu dögum, meðal ann­ars fyrir að tísta um börn lög­reglu­manna, taka ítrekað þátt í ólög­legum mót­mælum, og/eða verj­ast hand­tökum. Umfjöll­unin hefur verið upp­færð í sam­ræmi við þetta.

Gagnrýndi stjórnvöld á Youtube

Sem fyrr segir þá er Egor Zhukov 22 ára gam­all stjórn­mála­fræði­nemi við HSE háskól­ann í Moskvu, en skól­inn var stofn­aður eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna árið 1991 og er á meðal fremstu skóla Rúss­lands á sviði hag­fræði og skyldra faga. Zhukov er ekki síst þekktur sem frjáls­lyndur blogg­ari og hefur vakið mikla athygli fyrir gagn­rýni sína á Pútín og stjórn hans í mynd­böndum sem hafa fengið mikla dreif­ingu á Youtube þar sem hann er nú með 123 þús­und áskrif­endur. Hann hugð­ist bjóða sig fram á þingið í Moskvu í kosn­ing­unum þann 8. sept­em­ber en í kjöl­far vand­ræða við að safna und­ir­skriftum dró hann fram­boð sitt til baka og lýsti yfir stuðn­ingi við fram­bjóð­end­urna Dmitry Gudkov og Alex­ander Soloviev sem hafa farið fyrir sam­ein­uðum lýð­ræð­is­sinnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár