Svona menn breytast ekki

Eftir aðeins nokk­urra mán­aða sam­band við góðan og heill­andi mann á spjall­síðu á net­inu ákvað Kemala að freista gæf­unnar, yfir­gefa heim­kynni sín og fljúga á vit ævin­týr­anna á Íslandi. Hún gift­ist mann­inum og allt var gott fyrst um sinn, þar til hún varð ófrísk og hann sýndi sitt rétta and­lit. Við tóku nokkur ár af and­legu og lík­am­legu ofbeldi.

Svona menn breytast ekki
Óttast að hann meiði barnið Aðra hverja helgi fer barn Kemölu til pabba síns. Í hvert sinn sem það snýr aftur til mömmu sinnar grand­skoðar hún lík­ama þess, af ótta við að hann hafi beitt það ofbeldi. Hún á erfitt með að skilja hvers vegna menn sem hafa orðið upp­vísir að ofbeldi hafa rétt til að umgang­ast börn sín. Mynd: Heiða Helgadóttir

Árið 2012 kynnt­ist Kemala, sem kemur frá landi í Suð­austur-Asíu, íslenskum rík­is­borg­ara á stefnu­móta­síðu. Þau byrj­uðu fljótt að tala saman dag­lega og eftir nokk­urra mán­aða sam­band ákvað hún að taka boði hans, flytja til Íslands til að vera með honum. Hún kom því til Íslands og skömmu síðar giftu þau sig. Brúð­kaupið fór fram fyrr en Kemala hefði óskað sér, en nauð­syn­legt því öðru­vísi gat hún ekki dvalið lengur hjá honum. „Hann var góður og heill­andi fyrst um sinn og allt var fínt. Frá upp­hafi tal­aði hann mikið um að hann lang­aði til að gera mig ófríska. En um leið og það gerð­ist sýndi hann mér sitt rétta and­lit. Þá byrj­aði hann að vera and­styggi­legur við mig. Hann byrj­aði samt ekki að berja mig fyrr en eftir að barnið fædd­ist. Ég var svo vit­laus. Þannig líður mér núna. Af hverju gift­ist ég þessum manni? Af hverju varð ég ólétt eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár