Elti drauminn um aukið frelsi og jafnrétti

Elena frá Suður-Ameríku sá fyrir sér gef­andi fjöl­skyldu­líf með íslenskum manni, sem seldi henni hug­mynd­ina um jafn­réttisparadís­ina Ísland. Í stað­inn beið hennar ein­angrun, and­legt og lík­am­legt ofbeldi sem varði svo árum skipti án þess að nokkur rétti henni hjálp­ar­hönd.

Elti drauminn um aukið frelsi og jafnrétti

„Ég er frá litlu þorpi sem er vin­sælt meðal ferða­manna. Ég hef alltaf verið for­vitin um aðra menn­ing­ar­heima svo það lá beint við fyrir mig að fara að vinna í ferða­manna­brans­anum. Í eitt skipti þegar ég var úti að skemmta mér með vin­konum mínum kynnt­ist ég mann­inum sem átti eftir að verða faðir barn­anna minna. Hann sagði mér frá land­inu sínu, Íslandi, sem ég hafði varla heyrt um fyrr og vissi ekk­ert um. Við fórum að hitt­ast meira. Ég var spennt fyrir honum og sá fyrir mér að við gætum kennt hvort öðru margt. Hann gæti kennt mér ensku, ég gæti kennt honum spænsku. Ég varð for­vitin um hans menn­ingu. Mér fannst hann dálítið sér­stakur en samt for­vitni­legur.“ 

„Hann hafði sagt mér frá því að á Íslandi væri ekk­ert ójafn­rétti, allir væru jafnir.“

Þannig lýsir Elena, sem kemur frá Suður-Ameríku, fyrstu kynnum sínum af íslenskum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár