Öryggið verður ekki metið til fjár

Hjónin Maríana og Jesús fluttu til Íslands frá Mexíkó í leit að öryggi og bjartri fram­tíð fyrir sam­kyn­hneigðan ung­lings­son sinn og tvær dætur. Þau koll­vörp­uðu lífi sínu, lifa við tals­vert þrengri kost en áður en hafa fundið sinn stað í til­ver­unni hér á landi.

Öryggið verður ekki metið til fjár
Alsæl með gjör­breytt líf Emilio, Maríanna, Jesús, Sara og Dóra eru öll sam­mála um að þau hafi tekið rétta ákvörðun þegar þau ákváðu að flytja frá Mexíkó til Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

Aðeins fáeinum dögum eftir að hin mexíkósk-íslenska Maríana Sveins­dóttir, eig­in­maður hennar, Jesús Zarate, og börnin þeirra þrjú höfðu tekið undir sig stökk og flutt alla leið frá Mexíkó til Íslands, lýsti sonur þeirra, Emilio, því yfir á sam­fé­lags­miðlum að hann hefði orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Að hann skyldi hafa hug­rekki til að opna sig á þann hátt sann­færði hjónin um að þau hefðu breytt rétt þegar þau tóku ákvörðun um að koll­varpa lífi þeirra allra, svo sonur þeirra fengi að lifa óáreittur. Skömmu síðar tók fjöl­skyldan öll form­lega þátt í gleði­göng­unni á Íslandi til að styðja við Emilio og lýsa því sem stór­kost­legri stund.

Í gleði­göng­unniFjöl­skyldan tók þátt í gleði­göng­unni skömmu eftir kom­una til Íslands. Það kom þeim á óvart að hún sner­ist raun­veru­lega um gleði og fögnuð hér, en ekki átök eins og á þeirra heima­slóðum.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár