Ekkert form sem fangar samtímann eins og heimildamyndir

Skjald­borg - hátíð íslenskra heim­ilda­mynda er haldin í þrett­ánda sinn á Pat­reks­firði nú um hvíta­sunnu­helg­ina. Hátíðin er þekkt fyrir ein­stakt and­rúms­loft, fjöl­breytta kvik­mynda­dag­skrá og marg­vís­lega skemmti­dag­skrá. Opn­un­ar­myndin að þessu sinni er Vasulka áhrifin eftir Hrafn­hildi Gunn­ars­dóttur en heið­urs­gestur hátíð­ar­innar er lett­neski leik­stjór­inn Laila Pakaln­ina. Þær Helga Rakel Rafns­dóttir og Kristín Andrea Þórð­ar­dóttir stjórna hátíð­inni nú í þriðja sinn.

Ekkert form sem fangar samtímann eins og heimildamyndir
Helga Rakel og Kristín Andrea Það sér­staka við Skjald­borg­ar­há­tíð­ina í ár er að þeirra mati að flestar mynd­irnar ger­ast að hluta eða öllu leyti í öðrum löndum. Það sé án efa til marks um það að íslensk heim­ilda­mynda­gerð er að stækka sem fag. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það var gott gengi sem fann upp þessa töfrafor­múlu sem hátíðin er, full­komin blanda af inni­legri alvöru og skemmtun, Þetta var hópur sam­settur af kvik­mynda­gerð­ar­fólki og heima­mönnum og þeim fannst til­valið að nýta hið ein­staka Skjald­borg­ar­bíó sem er á Pat­reks­firði til að hýsa hátíð sem þessa,“ útskýrir Helga. Spurð um áherslur í ár segir hún þær ekki vera neinar sér­stakar frá ári til árs, „en við pössum okkur að bæta alltaf við nýj­ungum og halda hátíð­inni lif­andi. Fyrir tveimur árum bættum við til dæmis við dóm­nefnd­ar­verð­launum og í ár ætlum við að brydda upp á þeirri nýj­ung að vera með pan­el­um­ræður um stöðu heim­ilda­mynda­gerðar. Það sem er kannski sér­stakt við hátíð­ina í ár er að flestar mynd­irnar ger­ast að hluta eða öllu leyti í öðrum löndum – og það er án efa til marks um það að íslensk heim­ilda­mynda­gerð er að stækka sem fag. En auð­vitað megum við ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár