Fyrirtækin sem menga mest

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna iðn­aðar á Íslandi mun aukast veru­lega næstu árin, meðal ann­ars vegna stór­iðju­verk­efna sem núver­andi stjórn­ar­flokkar bera póli­tíska ábyrgð á.

Fyrirtækin sem menga mest
Iðn­að­ar­mengun eykst Álf­ram­leiðsla á Íslandi er umhverf­is­vænni en víð­ast hvar í heim­inum í ljósi þess að hér er hún knúin af vatns­afli og jarð­varma. Engu að síður er Rio Tinto á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem menga mest á Íslandi og jafn­framt á lista Carbon Majors og Climate Accountability Institute yfir þau 100 stór­fyr­ir­tæki sem bera ábyrgð á mestri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heimi. Mynd: Pressphotos

Alcoa Fjarðaál, Norðurál á Grund­ar­tanga og Icelandair eru þau ein­stöku fyr­ir­tæki sem ollu mestri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi árið 2018. Þetta kemur fram í gögnum sem eru aðgengi­leg á upp­lýs­inga­vef Evr­ópu­sam­bands­ins um útblástur sem fellur undir ETS-við­skipta­kerfið með los­un­ar­heim­ildir.

Fyr­ir­tækin þrjú los­uðu hvert um sig meira en 500 þús­und tonn koltví­sýr­ingsí­gilda á árinu. Aðrir stórir meng­un­ar­valdar voru Elkem Ísland, sem rekur kís­il­verið á Grund­ar­tanga, Rio Tinto Alcan, sem rekur álverið í Straums­vík og flug­fé­lagið WOW air sem nú er farið í þrot.

Kísilver PCC á Bakka var gang­sett í fyrra og los­aði alls 50.402 tonn af CO2. Samkvæmt mati á umhverf­isáhrifum PCC er áætlað að árleg losun gróðurhúsaloft­teg­unda frá kís­il­ver­inu verði um 181.500 tonn CO2-ígilda á ári í fyrsta áfanga og tvöfalt meiri þegar annar áfangi hefur verið tek­inn í notkun, eða 363.000 tonn CO2-ígilda á ári. Fram kemur í sam­an­tekt Umhverf­is­stofn­unar að losun í iðn­aði hafi auk­ist lít­il­lega milli ára, úr 1.831.667 tonnum af CO2 árið 2017 í 1.854.715 tonn af CO2 árið 2018. 

Þá er áætlað að heild­ar­magn los­unar í kísil­veri Thorsil verði 396.000 tonn CO2-ígilda á ári miðað við full afköst fyrsta áfanga sam­kvæmt vöktun­aráætlun vegna ETS-kerf­is­ins og tvöfalt meira eftir að seinni áfangi verður kom­inn í rekstur, eða 792.000 tonn.

Þannig mun losun frá stór­iðju aukast veru­lega næstu árin, að stórum hluta vegna stór­iðju­verk­efna sem ýtt var úr vör í stjórn­ar­tíð þeirra flokka sem skipa núver­andi rík­is­stjórn. Til að mynda má ætla að kís­il­ver PCC á Bakka, sem sam­þykkt var að reisa með millj­arða íviln­unum frá hinu opin­bera í stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna, verði einn stærsti meng­un­ar­vald­ur­inn á sviði iðn­aðar næstu árin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár