Hversdagslíf Grænlendinga frá sjónarhorni þeirra sjálfra

Græn­lend­ingar eru ekki eins exó­tískir og umheim­ur­inn virð­ist halda. Þetta segir ljós­mynd­ar­inn Inuuteq Storch, sem hefur gert nokkrar bækur byggðar á mynda­albú­mum og bréfa­skriftum fjöl­skyldu sinnar. Hann vill leggja sitt af mörkum til að dýpka skiln­ing á Græn­landi nútím­ans.

Hversdagslíf Grænlendinga frá sjónarhorni þeirra sjálfra

Á sýn­ing­unni Porcelain Souls sem nú stendur yfir í Norræna hús­inu deilir græn­lenski lista­mað­ur­inn og ljós­mynd­ar­inn Inuuteq Storch myndum og bréfa­sam­skiptum fjöl­skyldu sinnar frá árunum 1960–1980. „Þegar ég byrj­aði að grúska í myndum og bréfum for­eldra minna sá ég fyrir mér að gera eina bók. En eftir því sem ég kaf­aði dýpra átt­aði ég mig á hversu mikið efni ég var með í hönd­unum, svo það stefnir í að þetta verði á end­anum nokkrar bækur,“ segir Inuuteq Storch.

Inuuteq StorchGræn­lenskar ræt­urnar eru til umfjöll­unar í verkum hans.

Hann svarar í sím­ann í heimabæ sínum í Sisimiut á Græn­landi. Þar er hann alla jafna með annan fót­inn en með hinn í Kaup­manna­höfn. Þegar hann er ekki á öðru hvoru heim­ila sinna ferð­ast hann með verk sín um heim­inn en þau hafa verið sýnd í Banda­ríkj­unum, Kólumbíu, Græn­landi, Danmörku, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár