„Ef hún drepur mig, þá mun ég brosa“

Bryndís Helga­dóttir fyr­ir­sæta flúði setur ind­verska gúrús­ins Ozen í frum­skógi Mexíkó af ótta um líf sitt. Hún segir hann og heila­þvegna fylgj­endur hans vilja tor­tíma henni eftir að hún hafn­aði honum. Fyr­ir­sætan og munk­ur­inn sögðu bæði Stund­inni sög­una af átök­unum, sem náðu hápunkti í mars þegar Bryndís leit­aði leiða til að ráða Ozen af dögum.

„Ef hún drepur mig, þá mun ég brosa“

„Líf mitt er í hættu,“ segir Bryndís Helga­dóttir fyr­ir­sæta í sam­tali frá Mexíkó. Hún ferð­að­ist um heim­inn í ára­tug á tísku­sýn­ingar og í ljós­mynda­tökur, en einnig í leit að and­legri upp­ljómun. Hún taldi sig hafa fundið hana í para­dís við Karí­ba­hafið, á Yucatán-skaga í Mexíkó, en ekki var allt sem sýnd­ist.

Fram á 10. öld var skag­inn heim­kynni Maya, stór­brot­innar menn­ing­ar­þjóðar sem skildi eftir sig minn­is­merki um trú­ar­iðkun sína og sið­menn­ingu. Rúmlega 100 kíló­metra strand­lengja er kennd við þjóð­ina, Maya Rivíeran, sem teygir sig frá borg­inni Cancún í norðri suður til Tulum. Á svæð­inu geta ferða­menn valið á milli lúx­us­dval­ar­staða til að njóta áhyggju­lausra sól­ar­daga í einum örugg­asta hluta lands­ins.

Nokkrum kíló­metrum inn af strönd­inni Playa del Carmen er einn slíkur dval­ar­staður, umluk­inn þéttum frum­skógi. Á átta hekt­ara svæði, í miðju ósnort­innar nátt­úru, eru glæsi­leg gisti­rými, veit­inga­staðir, nudd­stofur og við­burða­rými í stíl ind­versks „ashram“, hug­leiðslu­set­urs hindúa­munka, með miðam­er­ískum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár