Mynd: Heiða Helgadóttir

Verslunarstjóri benti á myndavélanjósnir Icewear og missti vinnuna

Versl­un­ar­stjóri Icewear í Þing­holts­stræti benti yfir­mönnum sínum á að þeim væri óheim­ilt að fylgj­ast með starfs­mönnum í gegnum mynda­vélar. Hann var rek­inn strax í kjöl­farið án þess að fá ástæðu gefna upp. Tölvu­póstar og skila­boð rekstr­ar­stjóra stað­festa eft­ir­litið.

„Ég komst að því að yfir­mað­ur­inn minn var far­inn að fylgj­ast með mér og öllu starfs­fólk­inu með mynda­vélum,“ segir Haukur Hild­ar­son, frá­far­andi versl­un­ar­stjóri Icewear í Þing­holts­stræti. „Eftir það kom hann inn í búð­ina og rak mig. Hann gaf ekki neina ástæðu.“

Haukur hafði starfað hjá Icewear í þrjú ár og sem versl­un­ar­stjóri frá því síð­asta sumar. Í lok febr­úar var hann rek­inn eftir að hafa leitað til trún­að­ar­manns vegna rekstr­ar­stjóra versl­ana fyr­ir­tæk­is­ins, sem ítrekað fylgd­ist með starfs­fólki í gegnum örygg­is­mynda­véla­kerfi versl­un­ar­innar. Fram­kvæmda­stjóri Icewear segir öllum reglum fylgt og segir ástæður brott­rekstrar Hauks aðrar.

„Hann sendi mér pósta með lýs­ingum á því hvað starfs­fólkið væri að gera,“ segir Haukur. „Hann lýsti því að það væri „fjöl­skyldu­heim­sókn“ við kass­ann þegar starfs­maður var með mömmu sína og systur fyrir framan. Hann sagð­ist vera búinn að vera að fylgj­ast með í stundum tutt­ugu mín­útur.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár