Niðurfærsla á eknum kílómetrum í bílum bílaleigunnar Procar virðist hafa farið fram með skipulögðum hætti allt frá árinu 2011. Samkvæmt gögnum Stundarinnar var kílómetramælum að minnsta kosti 115 bíla breytt og dregið úr eknum kílómetrum á árabilinu 2011 til 2016. Heildar kílómetrafjöldinn sem eytt var út af mælum þessara 115 bíla nemur ríflega 3,3 milljónum kílómetra. Það jafngildir því að eytt hafi verið út vegalengd sem jafnast á við að hringvegurinn hafi verið keyrður tæplega 2.500 sinnum. Þá hefði verið hægt að senda fjóra leiðangra til tunglsins og til baka, ríflega, miðað við sama kílómetrafjölda.
Forsvarsmenn Procar fara fram með ósannindi
Fjallað var um breytingar á kílómetramælum bíla Procar í fréttaskýringaþættinum Kveik 12. febrúar síðastliðinn. Sú umfjöllun byggði á gögnum sem fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins aflaði. Stundin hefur sömu gögn undir höndum. Í yfirlýsingu sem bílaleigan sendi frá sér í kjölfar …
Athugasemdir