Skrifstofa eigna og atvinnu­þróunar borgarinnar verði lögð niður

Lagðar eru til breyt­ingar á skipu­lagi stjórn­sýslu Reykja­vík­ur­borgar í nýrri skýrslu. Vinnan unnin í kjöl­far Bragga­máls­ins.

Skrifstofa eigna og atvinnu­þróunar borgarinnar verði lögð niður
Breyt­ingar á skipu­lagi Lagðar eru til breyt­ingar á skipu­lagi borg­ar­kerf­is­ins í nýrri skýrslu. Mynd: Af vef Reykjavíkurborgar

Lagt er til að skrif­stofa eigna og atvinnu­þró­unar hjá Reykja­vík­ur­borg verði lögð niður og verk­efni hennar færð undir ný kjarna­svið borg­ar­innar, sam­kvæmt til­lögu ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Stra­tegíu. Leitað var til fyr­ir­tæk­is­ins um ráð­gjöf við end­ur­skoðun á skipu­lagi stjórn­sýslu borg­ar­innar eftir að borg­ar­ráð sam­þykkti að hefja vinnu við slíka end­ur­skoðun 25. októ­ber 2018. Skipurit borg­ar­innar var síð­ast upp­fært árið 2012 og er það nið­ur­staða Stra­tegíu að umboð og hlut­verk innan borg­ar­kerf­is­ins séu ekki fylli­lega í takt við gild­andi skipu­rit.

Aðkoma skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar að fram­kvæmdum við end­ur­bygg­ingu á bygg­ing­unum við Naut­hóls­veg 100, Bragg­anum svo­nefnda, sætti mjög harðri gagn­rýni í skýrslu innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar sem birt var skömmu fyrir síð­ustu jól. Þar komst innri end­ur­skoðun að því að skrif­stofa eigna og atvinnu­þró­unar hefði verið setta á „eins konar sjálf­stýr­ingu“ sem hefði bitnað á innra eft­ir­liti og verk­lagi skrif­stof­unnar. Þá var Hrólfur Jónsson, þáver­andi skrif­stofu­stjóri, ekki sagður hafa fylgst með verk­efnum skrif­stof­unnar og ekki gefið upp­lýs­ingar um stöðu mála. Þá hafi Hrólfur verið í miklum sam­skiptum við borg­ar­stjóra en ekki við sinn næsta yfir­mann sam­kvæmt skipu­riti, sem er borg­ar­rit­ari.

„Lagt er til að skrif­stofa eigna og atvinnu­þró­unar hjá Reykja­vík­ur­borg verði lögð niður og verk­efni hennar færð undir ný kjarna­svið borg­ar­innar“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem innri end­ur­skoðun gerir athuga­semdir við starf­semi skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar því árið 2015 var einnig unnin úttekt á skrif­stof­unni og settar fram ábend­ingar um atriði sem betur mættu fara. Ekki voru gerðar full­nægj­andi úrbætur vegna þeirra ábend­inga. Í skýrslu innri end­ur­skoð­unar frá því í des­em­ber síð­ast­liðnum kom fram að ef úrbætur hefðu verið gerðar hefði verk­efnið að Naut­hóls­vegi 100 ekki farið í þann far­veg sem það gerði.

Umræða um óráðsíu vegna upp­bygg­ingar í Naut­hóls­vík komust í hámæli í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­ins en athuga­semdir höfðu borist borg­ar­lög­manni svo snemma sem sum­arið 2017. Óhjá­kvæmi­legt er annað en að setja vinnu við end­ur­skipu­lagn­ingu á stjórn­sýslu borg­ar­innar í sam­hengi við bragga­málið þó svo að fleira komi vissu­lega til.

Þrjú ný kjarnasvið verða til

Í skýrslu Stra­tegíu kemur fram að skipu­rit borg­ar­innar hafi breyst síðan árið 2012 þegar það var síð­ast end­ur­skoðað og verk­efni mið­lægrar stjórn­sýslu vaxið veru­lega og kalli það á heild­stæða end­ur­skoðun. Sem fyrr segir séu hlut­verk og umboð ekki fylli­lega í takt við núgild­andi skipu­rit. Meðal þeirra úrbóta sem til­teknar eru í skýrsl­unni eru að nauð­syn­legt sé að staða og hlut­verk kjör­inna full­trúa í borg­ar­stjórn gagn­vart emb­ætt­is­manna­kerf­inu þurfi að vera skýr og tryggja þarf meiri og beinni aðkomu þeirra að stefnu­mótun í mik­il­vægum mála­flokkum. Þá þurfi að end­ur­skil­greina hlut­verk borg­ar­ráðs en of mikið af verk­efnum séu falin ráð­inu og verka­skipt­ing milli þess og borg­ar­stjórnar, og raunar borg­ar­stjóra einnig, sé ekki skýr. Skerpa þurfi á þeirri hlut­verka­skipan. Þá er lagt til að styrkja skrif­stofu borg­ar­rit­ara veru­lega, meðal ann­ars með ráðn­ingu upp­lýs­inga­full­trúa skrif­stof­unnar, með því að koma á verk­efna­stofu innan hennar og að ýmis verk­efni flytj­ist til skrif­stof­unnar.

Gerð er til­laga um að ákveðin kjarna­starf­semi borg­ar­innar verði aðgreind frá fagsviðum borg­ar­innar með því að stofna um hana þrjú ný kjarna­svið, svið þjón­ustu- og nýsköp­unar, svið mannauðs og starfs­um­hverfis og svið fjár­mála og áhættu­stýr­ingar.

Undir svið mannauðs og starfs­um­hverfis falli einnig kjara­mál sem í dag heyra undir fjár­mála­skrif­stofu en undir svið fjár­mála og áhættu­stýr­ingar falli verk­efni núver­andi fjár­mála­skrif­stofu. Þar undir verði einnig færð öll áætl­ana­gerð og bók­halds­leg umsýsla tengd eigna­sjóði borg­ar­innar sem verið hefur hjá skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar.

Undir svið þjón­ustu og nýsköp­unar falli verk­efni sem varði innri og ytri þjón­ustu og nýsköpun, þar með talda upp­lýs­inga­tækni. Undir sviðið falli verk­efni sem nú heyra undir skrif­stofu þjón­ustu og rekstrar, ásamt verk­efnum sem heyra undir núver­andi skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar á sviði eigna­um­sýslu og rekstrar.

Önnur verk­efni sem verið hafa á hendi skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­unar verði færð til umhverfis- og skipu­lags­sviðs og til skrif­stofu borg­ar­stjóra og/eða borg­ar­rit­ara. Eftir þessar breyt­ingar verið þannig ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir á vegum borg­ar­innar án þess að um það sé fjallað á umhverfis- og skipu­lags­sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár